Bláa Lónið - 01apíl.
Bláa Lónið - 01apíl.

Aðsent

Er fyrirtæki þitt á samfélagsmiðlum?
Sunnudagur 16. febrúar 2020 kl. 08:43

Er fyrirtæki þitt á samfélagsmiðlum?

Stafrænt forskot, markaðssetning á samfélagsmiðlum, er verkefni Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands sem unnið er í samstarfi við landshlutasamtök sveitarfélaga um allt land með stuðningi frá samgöngu- og sveitastjórnarráðuneytinu í gegnum byggðaáætlun. Verkefnastjórar eru Arna Lára Jónsdóttir, Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir og Ingi Vífill Guðmundsson.

Öll fyrirtæki geta nýtt tækifæri sem liggja í því að nýta stafræna tækni í markaðssetningu.

Public deli
Public deli

Mörg fyrirtæki, ekki síst á landsbyggðinni, geta gert betur í þeim efnum. Víða er stafræn tækni að breyta vörum, þjónustu og viðskiptalíkönum þannig að ljóst er að þau fyrirtæki sem ekki hagnýta stafræna tækni sitja eftir og hreinlega eiga ekki möguleika. Þess vegna er það mikilvægt fyrir fyrirtæki að auka þekkingu sína og getu til að bæta samkeppnishæfni sína, efla nýsköpun og auka skilvirkni. Þetta þurfa fyrirtækin að gera til að geta vaxið og orðið við kröfum viðskiptavina sinna. Með aukinni stafrænni tækni og þekkingu geta fyrirtækin átt í árangursríkri samskiptum við viðskiptavini sína, auðveldar þeim að ná í nýja viðskiptavini og nýja markaði, auk þess sem hægt er að ná niður kostnaði.

Stafrænt forskot er röð vefrita og vinnustofa byggt á efni frá Business Gateway í Skotlandi. Verkefnið gengur út á uppbyggingu stafrænnar hæfni í íslenskum fyrirtækjum. Áhersla er á fyrirtæki sem eru ekki brautryðjendur í hagnýtingu stafrænnar tækni. Markmið verkefnisins er að miðla þekkingu og aðferðum til fyrirtækja sem vilja nýta stafræna tækni til að auka samkeppnishæfni og gera þau betur búin til að takast á við síbreytilegan stafrænan heim.

Nýsköpunarmiðstöð hefur sett upp vefsíðu sem býður upp vefritin og aðra fræðslu eru tengist stafrænni þekkingu, www.forskot.nmi.is.

Vinnustofur hafa verið á sex stöðum á landinu, Ísafirði, Akureyri, Egilsstöðum, Vestmannaeyjum, Sauðárkróki og Selfossi og nú bætist Reykjanes við.

Vinnustofurnar verða 25. febrúar, 10. og 18. mars í húsnæði Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum.

Á vinnustofunum fá þátttökufyrirtæki fræðslu um stafræna tækni og gildi hennar í nútíma samkeppni og læra hagnýtar leiðir til að nýta sér helstu tæki og tól til að efla stafræna færni sína. Vefsíður, samfélagsmiðlar, markaðir, markhópar skoðaðir og tilmæli til úrbóta sent fyrirtækjunum. Ingi Vífill mun kenna á námskeiðinu.

Bestu kveðjur,
Hulda B. Kjærnested.