Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Aðsent

Betri líðan og hagsæld barna
Laugardagur 5. júní 2021 kl. 07:04

Betri líðan og hagsæld barna

Ef Ísland á að vera barnvænt samfélag líkt og við jafnaðarmenn ætlum okkur eftir næstu kosningar, verður að styðja við fleiri barnafjölskyldur með barnabótum. Í Noregi, Svíþjóð og Finnlandi eru barnabætur ekki tekjutengdar en í Danmörku hefjast skerðingar við háar tekjur. Á Íslandi byrja skerðingarnar við 351.000 kr á mánuði!

Fólk með meðaltekjur hér á landi fá ekki barnabætur.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Tekjutengingin er í hinum norrænu ríkjunum í gegnum tekjuskattskerfið. Hugsunin er sú að með barnabótum séu kjör þeirra sem eru með börn á framfæri jöfnuð við kjör þeirra sem eru ekki með börn á framfæri.

Við í Samfylkingunni jafnaðarmannaflokki Íslands viljum taka örugg skref að barnvænu samfélagi. Fyrsta skrefið við fjárhagslegan stuðning við barnafjölskyldur á næsta kjörtímabili verði að barnafjölskyldur með meðallaun fái óskertar barnabætur.

Óskertar mánaðarlegar greiðslur

Barnabætur eru greiddar út fjórum sinnum á ári. Fyrsta breytingin sem augljóslega þarf að gera er að greiða barnabætur út mánaðarlega til að lágmarka kostnað vegna yfirdráttar á bankareikningum og tryggja þar með að greiðslurnar verði eðlilegur partur af mánaðarlegum rekstri heimilisins.

Ef barnabætur yrðu greiddar út mánaðarlega þá næmu þær óskertar 31.000 krónur á mánuði með einu barni undir sjö ára hjá sambúðarfólki en 44.000 krónur til einstæðra foreldra. Ef börnin eru tvö og annað undir sjö ára er greiðslan 55.000 krónur á mánuði hjá sambúðarfólki en 78.000 krónur hjá einstæðum foreldrum.

Fresta barneignum

Í samtölum mínum við ungar konur með meðallaun, s.s. kennara, hjúkrunarfræðinga og bankastarfsmenn, segja þær allar að barnabæturnar séu ekki fyrir þeirra börn. Þó þær velti hverri krónu og aldrei sé afgangur um mánaðarmót sama hve margir yfirvinnutímar séu unnir. Um leið og foreldrarnir vinni meira til að geta veitt börnum sínum þokkalegt húsnæði, klæði, fæði og tómstundir, fái börnin lítinn tíma með foreldrum sínum og streitan við að skutla og sækja inn á milli vinnutarna taki sinn toll. Of margar þeirra fresta barneignum vegna efnahags.

Breytum þessu. Sýnum að alvara og þungi sé í slagorðinu „Barnvænt Ísland“ og leggið Samfylkingunni lið í kosningunum í september.

Oddný G. Harðardóttir,
þingmaður og oddviti Samfylkingarinnar í Suðurkjördæmi.