Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

WOW air kaupir fjórar glænýjar Airbus A321 flugvélar
Þriðjudagur 12. júlí 2016 kl. 11:48

WOW air kaupir fjórar glænýjar Airbus A321 flugvélar

- Listaverð flugvélanna eru 55 milljarðar íslenskra króna

Flugfélagið WOW air hefur fest kaup á fjórum glænýjum Airbus A321 flugvélum beint frá framleiðenda Airbus. Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air og Fabrice Brégier forstjóri Airbus skrifuðu undir samninginn í dag á flugvélasýningunni Farnborough í Bretlandi.

Listaverð vélanna er 55 milljarðar íslenskra króna eða 459,6 milljón bandaríkjadala og verða nýju flugvélarnar afhentar árð 2017 og 2018.

Floti WOW air, sem eingöngu samanstendur af Airbus flugvélum, stækkar nú úr 11 flugvélum í 17 á næsta ári með þessum kaupum auk annarra flugvélasamninga sem þegar hafa verið kynntir. Átta af þessum 17 vélum verða alfarið í eigu WOW air.

 „Við erum ánægð með að bæta glænýjum Airbus A321 flugvélum við okkar sívaxandi flota. WOW air er að verða eitt öflugasta lággjaldaflugfélag heims og við hlökkum til að halda áfram að vaxa og dafna í samstarfi við Airbus,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.

„Við bjóðum WOW air velkominn í hóp viðskiptavina okkar. Nýju Airbus A321 flugvélarnar munu falla vel að flota WOW air þar sem viðhaldskostnaður er í lágmarki en þægindi fyrir farþega í hámarki,“ segir John Leahy framkvæmdastjóri hjá Airbus.

Floti WOW air er ungur að árum en meðalaldur flugvélanna er aðeins tvö og hálft ár. Skammt er síðan keyptar voru þrjár nýjar Airbus A330-300 breiðþotur sem bera 350 farþega og hafa drægni upp á sex þúsund sjómílur. Þá eru sætabil í vélunum 31-35 tommur sem er meira en hefðbundin farrými hjá flestum flugfélögum sem eru oftast 29-31 tommur. Airbus A330-300 breiðþoturnar bera nöfnin TF-GAY, TF-LUV og TF-WOW.

WOW air rekur einnig tvær Airbus A320-200 flugvélar sem skráðar eru undir heitinu TF-BRO og TF-SIS auk sex Airbus A321 flugvéla sem bera nöfnin TF-MOM, TF-DAD, TF-SON, TF-KID, TF-GMA og TF-GPA.
WOW air kaus að fjölga Airbus A321 flugvélunum í flota sínum vegna rýmra farþegarýmis, lágs viðhaldskostnaðs og það hversu sparneytnar þær eru. Flugvélarnar verða notaðar í flugi bæði innan Evrópu og til Norður-Ameríku.
 

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024