WOW air flýgur til Miami allan ársins hring
Í dag mun WOW air hefja sölu á flugsætum til Miami en flugfélagið mun hefja áætlunarflug þangað 5. apríl á næsta ári. Flogið verður þangað þrisvar í viku, á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum allan ársins hring.
Flogið verður í nýrri Airbus A330 breiðþotu til Miami International flugvallarins sem er í innan við hálftíma akstursfjarlægð frá hinum vinsæla áfangastað South Beach. Þá eru tengingar flugvallarins á fjarlægari slóðir einnig mjög góðar en þaðan er hægt að fljúga áfram til fjölmargra staða innan Suður-Ameríku, Mið-Ameríku og Karabíska hafsins.
Miami er staður sem á engan sinn líkan. Sjórinn við strendur Miami mælist jafnan einn sá hlýjasti við meginland Bandaríkjanna og sólardagar Miami eru 249 talsins á ári að meðaltali sem gerir þennan áfangastað kjörinn til að njóta hvítu strandanna allan ársins hring. Þá státar Miami einnig af fjörugu næturlífi og mikilli matarmenningu. Kúbversk áhrif eru þar áberandi en hvergi í Bandaríkjunum eru fleiri ættaðir frá Kúbu en í Miami og nýtur svæðið góðs af fjölbreytileikanum.
„Það er ánægjulegt að vera fyrsta íslenska flugfélagið sem mun bjóða upp á áætlunarflug til Miami og höldum við þar með áfram stefnu okkar að kynna nýja og spennandi áfangastaði á hagstæðum verðum fyrir farþega okkar. Ég þekki Miami vel af eigin raun og veit að þar geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi. Einnig höfum við nú þegar fundið fyrir miklum áhuga á Íslandi frá íbúum Flórídafylkis sem munu án vafa nýta sér lág fargjöld og sækja Ísland heim,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air í tilkynningu.
Með þessum nýja áfangastað styrkir WOW air enn frekar leiðakerfi sitt með tengiflugi milli Norður-Ameríku og Evrópu með viðkomu á Íslandi. Markmiðið er að anna mikilli eftirspurn eftir flugi til og frá Norður-Ameríku. WOW air flýgur nú þegar allan ársins hring til Washington DC, Boston, Los Angeles, San Francisco, Toronto og Montréal og mun í haust hefja flug til New York.