WOW air flýgur til Cork á Írlandi
WOW air mun í júní á næsta ári hefja flug til Cork á Írlandi en flogið verður fjórum sinnum í viku, allan ársins hring. Ákveðið var að bæta við öðrum áfangastað á Írlandi vegna mikillar eftirspurnar en einnig er flogið allan ársins hring til Dublin.
Tímasetningar fluganna eru einstaklega hagkvæmar og munu gera Íslendingum kleift að nýta vel daginn þar ytra en flogið verður frá Keflavíkurflugvelli að morgni og lent klukkan 10:25 að staðartíma. Eins munu tímasetningarnar frá Cork henta Írum vel sem vilja ná tengiflugi til áfangastaða WOW air í Norður-Ameríku. Flogið verður á mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og sunnudögum.
Cork er önnur stærsta borgin á Írlandi á eftir Dublin. Cork er staðsett við suðvesturströnd Írlands og liggur að höfn. Áin Lee rennur í gegnum Cork og margar brýr tengja borgarhlutana saman og einkenna mjög borgina. Í Cork er gott að versla og veitingastaðir eru fjölmargir. Þá má einnig geta þess að Cork hefur lengi verið vinsæll áfangastaður fyrir golfáhugamenn enda fjölmargir golfklúbbar starfræktir í Cork og nálægum sveitum.
„Það er ánægjulegt að geta boðið upp á flug til fleiri áfangastaða á Írlandi en landið hefur mikið upp á að bjóða hvað varðar afþreyingu og stórbrotið landslag. Við finnum fyrir miklum áhuga Íra á Íslandi og hefur einnig verið mikil eftirspurn þaðan til áfangastaða okkar í Norður-Ameríku,“ segir Skúli Mogensen eigandi og forstjóri WOW air.