Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

WOW air býður upp á viðskiptafarrými
Þriðjudagur 31. janúar 2017 kl. 09:33

WOW air býður upp á viðskiptafarrými

— Ný stærri og breiðari sæti

WOW air tekur í notkun nýja bókunarvél á morgun og mun um leið bjóða upp á nýja valkosti fyrir farþega sína. Það sem helst ber að nefna er sú nýjung að boðið verður upp á viðskiptafarrými með stærri og breiðar sætum ásamt meiri fríðindum. Einnig verður veittur meðal annars forgangur þegar gengið er um borð í vélar félagsins en sá möguleiki verður í boði frá og með 1. mars næstkomandi.
 
Í nýju bókunarkerfi verður hægt að velja um þrjár mismunandi leiðir:
 
• WOW Basic – innifalið í verði er flug og lítil taska (t.d. lítill bakpoki, veski eða fartölvutaska; hámarksummál: 42x32x25 cm).
 
• WOW Plus – innifalið í verði er flug, lítil taska/veski, handfarangur 12 kg (56x45x25 cm), innritaður farangur 20 kg og forfallavernd. 
 
• WOW Biz – innifalið í verði er flug, lítil taska/veski, handfarangur 12 kg, innritaður farangur 20 kg, sætaval (stærsta sætið sem er í boði hverju sinni), forgangur um borð og máltíð um borð.
 
Í WOW Biz leiðinni verður í Airbus 330 vélunum mögulegt að bóka sérstaklega breiðari og stærri sæti sem munu kallast Big Seat. Sætin eru útbúin með þægindi farþegans í fyrirrúmi og bjóða upp á enn meira sætabil og fótaskemil. Þetta er í fyrsta sinn í sögu WOW air sem slík sæti eru í boði. Sætabil nýju sætanna verður 37 tommur en til samanburðar eru hefðbundin flugsæti með sætisbil upp á 30 tommur. 
Viðskiptasæti í öðrum vélum félagsins; Airbus A320 og Airbus A321, verða XXL sæti sem eru með auknu sætabili, 35-37 tommur.
 
Áfram verður í boði að kaupa sæti með auknu sætabili ein og sér. Þau eru eftirfarandi; Big seat (37 tommur), XXL (35-37 tommur) og XL ( 32-34 tommur).
Breyting verður á farangursheimild sem innifalin er í verði flugmiðans. Innifalin er lítil taska/veski sem er smáhlutur á borð við lítinn bakpoka, veski eða tölvutösku. Þessi farangur verður að geta komist fyrir undir sæti.
 
Handfarangurstaskan sem hægt er að greiða fyrir aukalega er samkvæmt  IATA stöðlum; 56x45x25 cm og má vera 12 kg. Flest flugfélög í heiminum bjóða upp á þessa stærð.
 
Með WOW Plus leiðinni býðst farþegum WOW air að bóka miða með farangursheimild innifalinni á lægra verði en þegar henni er bætt við WOW Basic miða.
 
„Við höfum unnið hörðum höndum að því að lækka verð á flugi til og frá Íslandi sem og yfir Atlantshafið og þar með gert sem flestum kleift að ferðast.  Núna ætlum við einnig að snarlækka hefðbundin viðskiptafargjöld með því að bjóða mikið af sömu þjónustu svo sem stærri sæti, töskuheimildir og máltíðir fyrir mun hagstæðari verð en áður hefur þekkst.  
 
Viðskiptafarþegar okkar hafa stöðugt verið að aukast og erum við hér með að mæta auknum kröfum þeirra,“ segir Skúli Mogensen forstjóri og stofnandi WOW air.
 
Til að komast við móts við viðskiptafarþega WOW air verður frá lok mars boðið upp flug tvisvar á dag til London, París, Amsterdam, Kaupmannahafnar, Berlínar og Dublin.
 
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024