Vueling Airlines flýgur frá Barcelona til Íslands
Enn bætast flugfélög við í sumaráætlun á Keflavíkurflugvelli
Spænska flugfélagið Vueling Airlines sem nýlega kynnti áform um fljúga til Íslands frá Barcelona í sumar hefur fengið afgreiðslutíma á Keflavíkurflugvelli. Félagið hyggist fljúga til landsins að næturlagi með brottför frá Keflavík kl. 01:25 og 01:40 aðfaranætur þriðjudaga og föstudaga frá 20. júní til 17. september
Vueling er umsvifamikið lággjaldaflugfélag og flýgur m.a. frá Barcelona til 100 áfangastaða í Evrópu, Afríku og Miðausturlöndum. Félagið er 17. Flugfélagið sem samið hefur um að halda uppi áætlunar- eða leiguflugi á Keflavíkurflugvelli í sumar.