Bygg
Bygg

Viðskipti

Vinnufriður í sjávarútvegi nauðsynlegur
Þriðjudagur 12. maí 2009 kl. 00:31

Vinnufriður í sjávarútvegi nauðsynlegur

Stjórn Reykjaness - félag smábátaeigenda á Reykjanesi - hefur sent frá sér eftirfarandi:

 
„Fyrningarleið stjórnarflokkanna  =  alger óvissa í sjávarútvegi
 
Í því efnahagsástandi sem nú ríkir er vinnufriður í sjávarútvegi nauðsynlegur. 
Sjávarútvegurinn er ein fárra líflína sem heldur Íslandi á floti í dag og því verður að hlúa að starfsumhverfi hans. 
 
Fyrning aflaheimilda mundi leiða til glundroða og óvissu í sjávarútveginum auk þess að verðfella lánasafn hans í bönkum sem leitt gæti til annars hruns bankakerfisins.  Hvað biði okkar þá? 
 
Þeir sem halda öðru fram eru ekki í takt við þann raunveruleika sem nú ríkir í íslensku þjóðfélagi, fjölmargir eru í sárum eftir þann peninga- og eignabruna sem orðið hefur í samfélaginu.
 
Stjórn Smábátafélagsins Reykjanes skorar á ríkisstjórn Íslands að leggja til hliðar öll áform sem þau hafa um „fyrningarleið" í íslenskum sjávarútvegi og stuðla frekar að uppbyggingu íslenskra atvinnuvega í stað niðurrifs, og auka þannig líkur á að Ísland verði áfram fullvalda ríki.
Bílakjarninn
Bílakjarninn