Vínbúðin Keflavík flytur á Samkaupssvæðið

Lengi hefur staðið til að stækka verslunina vegna aukinna umsvifa, en nýja húsnæðið verður töluvert rýmra og aðkoman mun betri fyrir viðskiptavini.
Áætlað er að opna nýju Vínbúðina í nóvember næstkomandi og loka um leið Vínbúðinni við Hafnargötu. Á sama tíma mun nafni verslunarinnar breytt í Vínbúðin Reykjanesbæ.