Fimmtudagur 4. janúar 2001 kl. 10:33
Vilja hækka hlutafé um 250 millj. kr.

Samkaup hf. hefur boðað til hluthafafundar mánudaginn 8. janúar nk. Fundurinn hefst kl. 17:30 og verður haldinn á Glóðinni í Keflavík. Markmið fundarins er að ná meira hlutafé inn í fyrirtækið. Hlutafé félagsins er nú 250 millj. kr. en tillaga stjórnar snýst um að hækka hlutfé um aðrar 250 milljónir. Einnig leggur stjórnin til að núverandi hluthafar falli frá forkaupsrétti sínum.
Samkaup hf. og Matbær ehf. (KEA) sameinuðu rekstur sinn á nýársdag en hið nýja félag verður þriðja stærsta matvöruverslunarkeðja landsins.
Á myndinni hér að neðan sjást forsvarsmenn fyrirtækjanna skrifa undir þegar fyrirtækin voru sameinuð á nýársdag.