Viðskipti

Vildi græða upp allan Reykjanesskagann
Sunnudagur 5. júní 2016 kl. 06:00

Vildi græða upp allan Reykjanesskagann

„Ég byrjaði með ræktun hérna fyrir utan því ég ætlaði að bjarga Reykjanesskaganum. Svo fór ég að selja eina og eina plöntu og þetta vatt upp á sig,“ segir Gunnhildur Ása Sigurðardóttir, garðyrkjufræðingur og eigandi gróðrarstöðvarinnar Glitbrár í Sandgerði. Hún ólst upp í Sandgerði en flutti í nokkur ár til Noregs á níunda áratugnum. Þegar hún kom til baka fannst henni alveg vanta tré og gróður á Suðurnesjum og byrjaði því, eins og áður sagði, að fikta við ræktun  sjálf. Ræktunin er á landi Bárugerðis við  Stafnesveg 22  í Sandgerði þar sem Gunnhildur ólst upp. Ásamt því að reka gróðrarstöðina reka Gunnhildur og eiginmaður hennar, Geir Sigurðsson, Blómastofuna Glitbrá við Hafnargötu 25 í Reykjanesbæ.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Gunnhildi tókst að smita eiginmanninn af gróðuráhuganum og tekur hann til hendinni við ræktunina meðfram störfum hjá  HS Veitum. Núna er háannatími í gróðrastöðinni enda sumarið skollið á. Á góðviðrisdögum þegar mest er að gera hafa komið hátt í þúsund viðskiptavinir og gestir. Flestir þeirra eru af Suðurnesjum en Gunnhildur segir líka marga koma höfuðborgarsvæðinu. „Fólki finnst alveg jafn skemmtilegt að koma hingað eins og að fara til Hveragerðis,“ segir hún.  Þær plöntur sem eru vinsælastar eru þær sem eru í blóma á hverjum tíma. „Núna eru kirsuberjatrén  vinsælust því þau eru búin að vera að blómstra. Eftir um það bil hálfan mánuð verður það geislasópurinn því að þá verður hann eitt gult blómahaf. Svo þegar kvistirnir og topparnir byrja að blómstra verða þeir vinsælastir.“ Stjúpan og hádegisblómið eru svo alltaf vinsælustu sumarblómin.

Undirbúa sumarið allt árið
Þó svo að mest sé að gera yfir sumartímann stendur undirbúningur yfir allt árið í gróðrarstöðinni. Gunnhildur er með tvo hektara af landi og um 900 fermetra undir gleri og plasti. Hún segir þetta þó bara sýnishorn af gróðrarstöð. „Þetta þykir pínulítið hjá mér en er samt alveg nógu stórt því þetta er mikil vinna.“ Það þarf að ganga frá öllu fyrir veturinn og því lýkur í lok nóvember. Svo hefst undirbúningurinn fyrir sumarið og sáning í janúar. Það er því  frí í gróðarstöðinni í desember fyrir utan eftirlit en þá er mesti annatíminn á blómastofunni í Reykjanesbæ. Gunnhildur ræktar hluta blómanna sem þar eru seld, meðal annars öll sumarblómin og eitthvað af meðlætinu, eins og hún kallar þetta grænu stráin og fleira sem er með afskornum blómum í vöndum. Hún gerir sér þó vonir um að geta ræktað meira fyrir blómastofuna í framtíðinni.

Gróðrastöðin Glitbrá er við Stafnesveg í Sandgerði, nokkrum tugum metra frá ströndinni. Aðspurð um það hvernig sé að vera með gróðrastöð í rokinu og seltunni segir Gunnhildur það ganga upp og ofan. „Þetta er náttúrulega bilun. Þetta er ekki burðug bygging og það getur orðið ansi hvasst og margar andvökunætur yfir vetrartímann. Þetta hús er þó búið að standa í 14 ár. Á veturna förum við hjónin svo bara og skiptum um gler í staðinn fyrir það sem brotnar.“

Margar sterkar plöntur
Þegar verið er að planta trjám segir Gunnhildur að mjög mikilvægt sé að byrja á því að búa til skjól með sterkum plöntum. „Þá er mjög gott að nota einhverja víðitegund, eins og jörfavíði, brekkuvíði, grásteinavíði, þorláksvíði og viðju. Svo hafa fjallarifsið og mispillinn verið að koma vel út því þeir þola seltuna ágætlega.“ Gunnhildur segir reyniviðinn og keisaraöspina líka mjög sterkar trjátegundir, sem og íslenska birkið og þá sérstaklega yrkið Embla. „Svo þegar skjólið er komið, þá er hægt að gera allt mögulegt inni í garðinum.“ Vilji fólk gróðursetja gullregn mælir Gunnhildur með fjallagullregni sem blómstrar á sautjánda til tuttugasta aldursári. Garðagullregnið blómstrar fyrr en er viðkvæmara en þrífst, að sögn Gunnhildar, mjög vel í skjólgóðum görðum. „Svo eru berjarifsið og hansarósin sterkustu plöntur sem hægt er að fá. Hansarósin þolið mikið og hana þarf ekki að hugsa mikið um.“

Gunnhildur segir mjög sniðugt að blanda saman nokkrum tegundum af trjám í beð og skjólbelti. „Það geta alltaf komið upp sjúkdómar í einhverri tegund eins og gerðist með gljávíðinn og hreggstaðavíðinn á sínum tíma þegar upp kom ryðsveppur sem ekki varð ráðið við. Sumir rifu hann úr beðunum en aðrir vilja bíða og sjá til.“ Gunnhildur segir að eftir að ryðsveppurinn kom upp sé fólk tilbúnara að hafa beðin blönduð. „Það er svo gott því þá missir maður ekki allt skjólið ef sjúkdómur kemur upp. Öll skjólbelti á landinu eru núna þannig að það eru þrjár til fimm tegundir notaðar til að gera það þétt ef eitthvað skyldi koma upp á.“

Veðrið leikur stórt hlutverk í gróðrarstöðinni og hefur áhrif bæði á afkomu plantanna og viðskiptin. Aðspurð um veðrið í sumar kveðst Gunnhildur fullviss um að það verði gott. „Ég er alveg viss um að þetta verður glimrandi sumar sem við erum að fá. Ég hef það mjög sterkt á tilfinningunni.“

Í Blómastofunni Glitbrá í miðbæ Reykjanesbæjar. Gunnhildur ræktar hluta blómanna sem á boðstólum eru þar.