Víkurfréttir fyrr í prentun í næstu viku
Vegna yfirvofandi verkfalls í prentsmiðju verða Víkurfréttir sendar fyrr í prentun í næstu viku. Blaðið fer því í prentun á þriðjudagskvöldi í stað miðvikudags. Við hverjum því auglýsendur til að vera tímanlega á ferðinni með auglýsingar í blaðið í næstu viku, sem verður dreift fimmtudaginn 11. júní.
Póstfang auglýsingadeildar er [email protected] og síminn er 421 0001.
Þeir sem vilja koma að efni í blaðinu eru einnig hvattir til að senda það til fréttadeildar á póstfangið [email protected] með góðum fyrirvara.