Víkingailmur fyrir sanna víkinga

„Ég er með náttbuxur fyrir bæði kynin, náttföt, nærföt og sloppa og ilmvötn sem eru klassísk jólagjöf. Ég hef trú á að nýji íslenski herrailmurinn Tru Viking verði mjög vinsæll í ár. Jólaförðunin verður íburðarmikil og mikill glamúr. Mikið um glimmer og sanseraða, sterka liti. Konur eru orðnar mjög óhræddar við að prófa nýungar í förðun og eru flestar duglegar við að farða sig sjálfar“.