Laugardagur 1. maí 1999 kl. 20:17
VERKAFL HF. FÆR FYRSTA ÁFANGANN
Bæjarráð hefur samþykkt að taka tilboði Verkafls hf. í 1. áfanga fráveitukerfisins í Njarðvík. Verkafl átti lægsta tilboðið að upphæð kr. 58.009.905 krónur sem var aðeins 69,3% af kostnaðaráætlun.