Vaxtarþáttur úr Grænni smiðju ORF í Grindavík notaður í húðvörur
Fyrstu húðvörurnar með vaxtarþætti sem framleiddur er í Grænni smiðju ORF Líftækni í Grindavík verða brátt settar á markað í Bandaríkjunum, samkvæmt nýjum samningi ORF Líftækni og bandaríska húðvörufyrirtækisins Ronald L. Moy, MD. Inc.
Samningur fyrirtækjanna er til þriggja ára og hefur verulega þýðingu fyrir ORF Líftækni sem mun bæta við sig starfsfólki í kjölfarið og auka framleiðslugetu sína. Þetta er í fyrsta skipti sem vaxtarþættir, framleiddir í plöntum, eru notaðir í húðvörur.
„Við teljum vera mikil tækifæri fyrir grænar afurðir okkar á markaði fyrir húðvörur, enda er mikið öryggi falið í því að framleiða slík prótein í plöntum. Það er sérstaklega ánægjulegt að þessi fyrstu spor okkar inn á markað fyrir húðvörur séu tekin í samstarfi við einn virtasta húðlækni Bandaríkjanna og það mun án vafa styrkja frekari sókn okkar inn á þann markað,“ segir Björn Lárus Örvar, framkvæmdastjóri ORF Líftækni.
Það sérvirka prótein sem um ræðir er vaxtarþáttur sem er húðfrumum nauðsynlegur til vaxtar og viðhalds. Vaxtarþátturinn örvar meðal annars frumur til að lagfæra skemmdir af völdum sólbruna og spornar gegn almennri hrörnun húðarinnar. Náttúruleg virkni vaxtarþáttarins minnkar þó með aldrinum, sem hamlar viðhaldi og endurnýjun húðfruma. ORF Líftækni og húðvörufyrirtækið Ronald L. Moy, MD. Inc. hafa unnið saman undanfarið ár að rannsóknum og þróun á notkun vaxtarþátta í húðvörum.
Ronald L. Moy, MD. Inc. er í eigu Dr. Ronald L. Moy, prófessors í húðlækningum við UCLA Medical School í Kaliforníu. Dr. Moy er fyrrum forseti Sambands bandarískra húðskurðlækninga (American Society for Dermatologic Surgery), og hefur nýlega verið kosinn næsti forseti Bandarísku húðlæknaakademíunnar (American Academy of Dermatology). Dr. Moy hefur ritað fjölmargar bækur og fræðigreinar um húðlækningar og er landsþekktur fyrir störf sín. Hann hefur setið í stjórnum margra alþjóðlegra samtaka. Hann rekur auk þess margar húðlæknastofur í Kaliforníu.
ORF Líftækni er íslenskt nýsköpunarfyrirtæki sem þróað hefur nýstárlega aðferð, Orfeus™ kerfið, fyrir framleiðslu á sérvirkum próteinum fyrir læknisrannsóknir, lyf og iðnað. Orfeus™ kerfið byggir á því að nýta sér fræ byggplöntunnar sem smiðju fyrir þessi prótein. Byggið er ræktað í Grænu smiðju fyrirtækisins í Grindavík. Tilraunir með útiræktun hafa einnig farið fram undanfarin ár í Gunnarsholti á Rangárvöllum. Með Orfeus™ kerfinu og markvissri viðskiptanálgun hefur ORF Líftækni skipað sér í fremstu röð fyrirtækja á þessu sviði í heiminum. ORF Líftækni hlaut Nýsköpunarverðlaun Rannís, Nýsköpunarmiðstöðvar og Útflutningsráðs árið 2008.
Þetta er í fyrsta skipti sem vaxtarþættir, framleiddir í plöntum, eru notaðir í húðvörur.
Græna smiðjan við Grindavík.