Bygg
Bygg

Viðskipti

Fimmtudagur 22. febrúar 2001 kl. 10:40

Vann ferð fyrir tvo

Dregið var í Ferðahappdrætti söluskrifstofu Flugleiða í Leifsstöð í síðustu viku. Vinningshafi var Indriði Adolfsson og fékk hann ferðavinning fyrir tvo til Evrópu.

Mynd: Gestína Sigurðardóttir, starfsmaður fyrirtækjaþjónustu skrifstofunnar afhendir Indriða ferðaávísun. Með þeim á myndinni er Guðrún Pétursdóttir, þjónustustjóri.

Söluskrifstofa Flugleiða í Leifsstöð er opin alla daga vikunnar frá kl. 5:30 - 17:00, allan
ársins hring. „Við sinnum allri almennri söluskrifstofuþjónustu, bókum einstaklingsferðir, hótel og bílaleigubíla. Við erum einnig með sérstaka fyrirtækja og hópaþjónustu sem tveir starfsmenn í dagvinnu sinna eingöngu. Sú þjónusta nýtur sívaxandi vinsælda. Mjög algengt er að notast sé við tölvupóst sem gerir öll samskipti mjög þægileg ef viðskiptavinir veigra sér við að fá sér bíltúr og
koma í heimsókn til okkar upp í Leifsstöð en netfangið okkar er [email protected].
Bílakjarninn
Bílakjarninn