Útvíkkun Sparisjóðsins fyrirhuguð
-segir Geirmundur Kristinsson, sparisjóðsstjóri.
Aðalfundur Sparisjóðsins í Keflavík verður í dag. Stofnunin kynnti afkomutölur nýlega og þar kom fram að um er að ræða besta afkomuár í sögu Sparisjóðsins í Keflavík. Við tókum Geirmund Kristinsson, sparisjóðsstjóra tali fyrir fundinn á morgun.
Nú liggur fyrir besta afkoma í sögu sparisjóðsins. Hverju þakkar þú þann árangur?
Á síðasta ári var innleystur mikill gengishagnaður þegar tekin var ákvörðun um að selja öll hlutabréf okkar í Kaupþingi við sameiningu Kaupþings og Búnaðarbanka. Gengishagnaður þessi hafði safnast upp á allmörgum árum eða nánar tiltekið frá 1986 þegar sparisjóðirnir keyptu Kaupþing. Þetta skýrir að mestu frábæra afkomu síðasta árs þó ekki megi gleyma því að markaðsstaða SPKEF er afar góð á Suðurnesjum. Sparisjóðurinn er nær 100 ára og hefur hann á þeim tíma byggt upp langvarandi samband við viðskiptavini sína á starfssvæðinu sem við metum mikils. Starfsfólk sparisjóðsins hefur mikla reynslu og einstaka þjónustulund sem hefur skilað sér í því að í Íslensku ánægjuvoginni hafa viðskiptavinir sparisjóðanna verið hvað ánægðastir ef þjónusta fjármálafyrirtækja er mæld. Það segir sitt um hve mikið býr í okkar starfsfólki að meðalstarfsaldur er mældur í áratugum og er leitun að annarri eins tryggð hjá íslenskum fyrirtækjum.
Hafa verið einhverjar breytingar í rekstrinum eða eru einhverjar væntanlegar?
Síðasta ár urðu breytingar helst á eignarhaldi á dótturfyrirtækjum eins og ég gat um hér á undan. Framundan stendur fyrir dyrum að fara gagngert í gegnum allar okkar rekstrareiningar með hagræðingu í huga og einnig munum við þróa þá þjónustu sem í boði er og einbeita okkar að því að styrkja samband okkar við núverandi viðskiptavini.
Hvað með samstarf sparisjóðanna. Nú hefur það verið talsvert, en munu þessar hræringar eitthvað hafa að segja hvað það varðar?
Það er nokkuð ljóst að upp úr þessu ölduróti kemur upp ný staða sem verður að taka afstöðu til. SPRON hefur það enn á stefnuskrá að leita leiða til að breyta eignaformi sínu og hafa því skapað sér nokkra sérstöðu meðal sparisjóða. Það kemur þá í hlut annarra sparisjóða að taka ákvörðun um hvort efla eigi samstarfið eða leita sameiningarleiða. Hitt er ljóst að stjórnvöld og löggjafinn hafa lýst því yfir fullur áhugi er á að sparisjóðir starfi áfram með einum eða öðrum hætti.
Hvað með frekari sameiningu?
Það er undir þeim sparisjóðum sem starfandi eru víðsvegar um landið hvort áhugi er fyrir að sameinast og þá þarf að taka tillit 24 ólíkra sjónarmiða. En frá okkar bæjardyrum séð er fullur vilji til að starfa með þeim sem vilja veg sparisjóða sem mestan og ef það fæst með sameiningu við aðra sparisjóða þá ætlum við ekki að útiloka þá leið.
Hver er framtíðarsýn Sparisjóðsins í Keflavík?
Framtíðarsýn SPKEF mun áfram vera sú að bjóða Suðurnesjamönnun alhliða fjármálaþjónustu sem hentar hverjum og einum. Þátttaka okkar í íþrótta- menningar og líknarstarfi á svæðinu mun einnig skipa stóran sess í okkar aðgerðum. Undanfarin ár höfum við lagt í stefnumótunarvinnu sem fylgt verður eftir á næstu misserum. T.a.m. stendur yfir endurskoðun á útibúaneti okkar og er verið að kanna möguleika á því að bjóða þeim viðskiptavinum okkar sem brottfluttir eru af Suðurnesjum aðgang að okkur með útvíkkaðri starfsemi. En starfssvæði SPKEF verður áfram svæðið sunnan Hafnarfjarðar“, sagði Geirmundur.