Bygg
Bygg

Viðskipti

Úra- og skartgripaverslun Georgs V. Hannah 45 ára
Fimmtudagur 5. september 2013 kl. 09:40

Úra- og skartgripaverslun Georgs V. Hannah 45 ára

Georg V. Hannah fagnar um þessar mundir 45 ára afmæli fyrirtækis síns, Úra- og skartgripaverslunar Georgs V. Hannah, sem frá upphafi hefur verið staðsett að Hafnargötu 49 í Keflavík.

Georg er lærður úrsmiður og opnaði verslunina fyrst í maí 1968. Þá voru þrjú fyrirtæki í húsinu. Auk Georgs var þar hraðhreinsun og herrafataverslun. Hreinsunin hætti fljótlega og rakarastofa opnaði í staðinn. Síðar gekk illa að leigja út plássið í húsinu og þá ákvað Georg að nýta það undir sína verslun með úr, klukkur, skartgripi og gjafavöru ýmiskonar og í raun hafi ekki veitt af öllu plássinu.

Á þessum 45 árum frá því að Georg opnaði hefur orðið mikil breyting í faginu hjá honum sem úrsmiði. Öll úr voru mekkanísk áður fyrr. Flest voru þau frá Sviss og sannkölluð gæðaúr. Síðar komu quarts-úr og tölvuúr og þá varð mikil breyting. Hann segir að það hafi verið skemmtilegra að eiga við mekkanísku úrin í gamla daga.

Georg hefur alla tíð verslað með úr, klukkur, skartgripi og gjafavöru. Fyrstu árin seldi hann einnig gæruskinn í mörgum litum sem voru vinsæl á heimilum fólks í þá tíð. Hann segir að kaninn hafi mikið keypt gærurnar. Á fyrstu árum verslunarinnar hafi hermenn af Vellinum einnig verið stór viðskiptahópur og það hafi verið mikið öðruvísi þegar Varnarliðið var til staðar í Keflavík.

Úra- og skartgripaverslun Georgs V. Hannah hefur alla tíð verið fjölskyldufyrirtæki. Eygló Geirdal hefur staðið við hlið bóndans alla tíð og þá hafa börn þeirra einnig tekið þátt í starfseminni. Nú starfar einn af þremur sonum þeirra hjóna, Eggert Hannah, sem gullsmiður í versluninni og hefur verið í því fagi í tvo áratugi. Annar sonur þeirra, Rúnar, er lærður úrsmiður en starfar ekki við iðnina. Þá segist Georg hafa verið heppinn með starfsfólk og það hafi unnið lengi við verslunina. Nú starfar Vordís Heimisdóttir í afgreiðslu og hefur verið um árabil.

Í tilefni af afmæli verslunarinnar verða ýmis tilboð og afslættir í boði nú um Ljósanæturhelgina. Í boði verða afslættir af vörum frá 25-45%.

Bílakjarninn
Bílakjarninn