Viðskipti

  • Uppbyggingarsjóður Suðurnesja auglýsir eftir styrkhæfum verkefnum
  • Uppbyggingarsjóður Suðurnesja auglýsir eftir styrkhæfum verkefnum
    Styrkþegar úr Vaxtarsamningi Suðurnesja. Mynd úr safni.
Föstudagur 17. apríl 2015 kl. 10:40

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja auglýsir eftir styrkhæfum verkefnum

Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum, Atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið og Mennta- og menningarmálaráðuneytið hafa gert með sér samning um Sóknaráætlun Suðurnesja sem gildir frá árinu 2015 til 2019.

Markmið samningsins er að stuðla að jákvæðri samfélagsþróun, treysta stoðir menningar og auka samkeppnishæfni landshlutans. Markmiðið er jafnframt að einfalda samskipti ríkis og sveitarfélaga og tryggja gagnsæi við úthlutun og umsýslu opinberra fjármuna.

Með samninginum verða gerðar breytingar á fyrirkomulagi styrkveitinga. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum hefur veitt styrki til menningarmála í gegnum Menningarsamning Suðurnesja og til þróunar- og nýsköpunarverkefna í gegnum Vaxtarsamning Suðurnesja. Báðir þessir sjóðir eru nú sameinaðir í einn styrktarsjóð sem nú heitir Uppbyggingarsjóður Suðurnesja.

Uppbyggingarsjóður er samkeppnissjóður og hlutverk hans er að styrkja menningar-, atvinnu- og nýsköpunarverkefni, auk annarra verkefna sem falla að sóknaráætlun landshlutans. Sjóðurinn styrkir að jafnaði ekki meira en 50% af heildarkostnaði verkefna.

Uppbyggingarsjóður Suðurnesja hefur nú auglýst eftir styrkhæfum verkefnum og er umsóknarfrestur til 30. apríl 2015.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024