Umsvif hjá WOW air minnka í vetur
Forsvarsmenn WOW air hafa ákveðið að draga enn frekar úr starfsseminni í vetur. Félagið mun því ekki að fljúga til Kaupmannahafnar eftir miðjan næsta mánuð. Ferðum félagsins til London verður einnig fækkað niður tvær á viku. Flogið verður til Gatwick flugvallar í London í vetur en ekki Stansted líkt og gert hefur verið í sumar.
Baldur Oddur Baldursson, framkvæmdastjóri WOW air, segir í samtali við vefsíðuna Túrista.is að ástæðan fyrir breytingunum sé sá mikli samdráttur sem eigi sér stað í ferðaþjónustunni á veturna. Hann telur því ekki vera markað fyrir fleiri flug en nú er lagt upp með. Auk ferðanna til London verður boðið upp á tvö flug í viku til Berlínar í allan vetur og til Alicante fram í lok október. Yfir háveturinn verður vikulegt flug til Salzburg í Austurríki.
WOW air hefur hingað til verið með tvær flugvélar á leigu en mun skila annarri þegar nýja vetraráætlunin er komin í gagnið.
- Viðskipti | 06. júní 2013 10:55Sérhæfð göngugreining á Ásbrú
- Viðskipti | 05. júní 2013 18:18Langur bíladagur hjá Bílabúð Benna í Reykjanesbæ
- Viðskipti | 04. júní 2013 07:12Matfiskeldi hefst við Reykjanesvirkjun síðar í sumar
- Viðskipti | 03. júní 2013 10:04Samið um upplýsinga- og landshlutamiðstöð fyrir Reykjanes
- Viðskipti | 31. maí 2013 10:32Konur í meirihluta stjórnar VÍS
- Viðskipti | 31. maí 2013 08:16Hótel Keflavík meðal þeirra bestu


