Torfærukappinn tekur við hjólbarðaþjónustunni

„Við erum með tilboð á tjöruþvotti og sápubóni út þennan mánuð, aðeins 1290 krónur. Þjónustan verður annars í föstum skorðum en það er aldrei að vita nema við bætum við einhverjum nýungum. Þetta er bara byrjunin, svo sjáum við hvað verður“, segir Gunni.
Þetta er í fyrsta sinn sem Gunni er með slíkan rekstur en hann hefur unnið á dekkjaverkstæði og hefur víðtæka þekkingu á bílum og öllu sem þeim fylgir, enda forfallinn bíladellukarl. Bræðurnir Gunni og Hörður starfa saman í fyrirtækinu en að sögn Gunna munu þeir bæta við starfsfólki á álagstímum.
„Við erum að fá nýja vél á næstunni fyrir stóru jeppana, svokölluð umfelgunar- og ballenseringavél. Einnig má benda á neyðarnúmerið okkar 861-2216 en í það geta viðskiptavinir okkar hringt allan sólarhringinn, þegar þeir þurfa á aðstoð okkar að halda“, segir Gunni.