Viðskipti

Tólf frá Suðurnesjum á Mannamót markaðsstofanna
Frá Reykjanesi. Ljósmynd: elg
Þriðjudagur 20. janúar 2015 kl. 09:20

Tólf frá Suðurnesjum á Mannamót markaðsstofanna

Markaðsstofur landshlutanna standa fyrir viðburðinum Mannamót 2015 sem fer fram nk. fimmtudag. Mannamótum er ætlað að mynda og efla tengsl á milli ferðaþjónustufyrirtækja á Íslandi og auka dreifingu ferðamanna um landið allt. Það eru markaðstofur landshlutanna sem setja upp viðburðinn fyrir samstarfsfyrirtæki sín en reikna má með að um 150 ferðaþjónustuaðilar kynni starfsemi sína fyrir gestum. Þar er eru tólf ferðaþjónustuaðilar af Suðurnesjum.

Tilgangur Mannamóta er að kynna ferðaþjónustufyrirtæki á landsbyggðinni fyrir ferðaþjónustuaðilum, ferðaskrifstofum og ferðaskipuleggjendum á höfuðborgarsvæðinu með það að markmiði m.a. að vinna að dreifingu ferðamanna um landið allt og efla uppbyggingu heilsársferðaþjónustu.

Reikna má með ríflega fimm hundruð gestum á viðburðinn sem haldinn verður í flugskýli flugfélagsins Ernis (vestan við Icelandair Hotel Natura) milli kl. 11 og 16, fimmtudaginn 22. janúar.

Public deli
Public deli