HSS
HSS

Viðskipti

Miðvikudagur 11. júlí 2001 kl. 10:32

Þúsund þorskar á færibandinu þokast nær

Slægingarþjónusta Suðurnesja er nýtt fyrirtæki í Sandgerði sem er byggt á gömlum grunni. Eigendur þess eru Arthur Galvez og Sveinbjörn Bjarnason en þeir hafa báðir áralanga reynslu af vinnu í sjávarútvegi. Sveinbjörn hefur starfað og rekið fiskverkun sl. 10 ár og Arthur hefur unnið við slægingu sl. 6 ár.

„Þetta er þjónustufyrirtæki. Við slægjum fyrir útgerðir en fyrst og fremst fiskkaupendur“, segir Arthur og Sveinbjörn leggur áherslu á að þeir kaupi engan fisk sjálfir og séu því ekki í samkeppni við viðskiptavini sína. „Við teljum það vera lykilatriði í að veita góða og hlutlausa þjónustu“, segir Sveinbjörn.
Húsnæði Slægingarþjónustunnar er í nýlegu stálgrindarhúsi og hjá fyrirtækinu eru að jafnaði 4-5 fastir starfsmenn. Þegar mikið er að gera þá er fólki bætt við eftir þörfum. „Hér er unnið bæði á nóttunni og daginn. Við klárum bara það sem fyrir er því varan þarf að sjálfsögðu að haldast fersk.“
Fiskurinn sem strákarnir fá til slægingar kemur að stærstum hluta frá bátum á Suðurnesjum, en að hluta frá Ólafsvík og Rifi. „Þetta er að mestu þorskur og magnið er nú breytilegt eftir mánuðum. Júnímánuður var óvenju góður miðað við tvö síðustu ár á undan, en við tókum 270 tonn í júní. Á vertíð erum við að fá svona 500-700 tonn á mánuði“, segir Arthur hressilega og síðan rokinn í símann til að sinna viðskiptavini.
Bílakjarninn
Bílakjarninn