Þrjú fyrirtæki undir sama þaki

Teiknistofan StudiOla sinnir alhliða húsgana-og innanhússhönnun fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga. Þjónustan byggir á hönnun,
ráðgjöf, efnisvali, efniskaupum og umsjón verkefna. InterPrent er endurvinnslufyrirtæki sem endurvinnur prenthylki (dufthylki) í laser prentara til endursölu. Jafnframt því að vera umhverfisvæn framleiðsla stuðlar endurvinnslan að lækkun rekstrarkostnaðar hjá notendum laser prentara.
StudiOla og InterPrent hafa þá sérstöðu að vera eitt sinnar tegundar á Suðurnesjum og er InterPrent eitt sinnar tegundar á landinu.
Agentia selur vörur sem eru sérstaklega valdar af innanhússarkitekt (Ólu) út úr Vídd, Lumex og Pílugardínum. Allar vörur eru á sama verði og á höfuðborgarsvæðinu og því ætti ekkert að vera því til fyrirstöðu að fólk af Suðurnesjum versli heima.
Að sögn Alberts hafa móttökur verið framar björtustu vonum. “Við skynjum jákvæðni og samheldni hjá íbúum svæðisins gagnvart verslun í heimabyggð", segir Albert.
Opnunartími verslunarinnar er frá kl: 12.00 til 18.00 alla virka daga en frameftir á fimmtudögum. Einnig er hægt að panta tíma ef annar tími hentar fólki betur.