Þrítugir Hlöllabátar þrífast vel í Reykjanesbæ
Hlöllabátar fagna 30 ára afmæli sínu nú í apríl. Staðurinn í Reykjanesbæ sem opnaði árið 2011, er níundi staður Hlöllabáta á landsvísu. Fyrir eru átta staðir í Reykjavík, Kópavogi, Akureyri og á Selfossi. Húsnæðið við Hafnargötu 12 þar sem staðurinn er til húsa er fornfrægur, en þar var áður til húsa m.a. Sérleyfisbifreiðir Keflavíkur og bæjarskrifstofur Keflavíkur. Guðjón er bókstaflega vakinn og sofinn yfir staðnum en hann hefur hreiðrað um sig á efri hæð hússins við Hafnargötuna. Þar segist hann kunna vel við sig.
Guðjón Valsson er rekstrarstjóri staðarins í Reykjanesbæ en hann fluttist til bæjarins fyrir skömmu. Guðjón sem er Mosfellsbæingur hafði áður séð um rekstur staðarins í Spönginni í Grafarvogi. Hann segir heimamenn hafa tekið sér vel og að staðurinn sé á miklu skriði nú síðustu misseri. „Þetta er allt á uppleið en á tímabili var þetta í smá lægð hjá okkur. Við vorum ekki að koma því til skila sem við bjóðum upp á.“
Guðjón segir að úrvalið sé fjölbreyttara en margar grunar og er mun meira á matseðlinum en bara þessir klassísku bátar sem allir þekkja. „Við erum með talsvert af hollum kostum eins og t.d. fimm mismunandi salöt og svo vefjur. Eins sem til eru góðir borgarar með beikoni og „pulled pork,“ sem eru mjög vinsælir að sögn Guðjóns. Vinsælastir meðal bátanna eru Tuddinn og New York sem báðir eru með nautakjöti, að sögn Guðjóns. Hann segir Hlöllabáta ætla að fagna afmælinu ærlega og búast megi við flottum nýjungum og ýmsum uppákomum núna þegar nær dregur tímamótunum.
Staðirnir eru alls staðar með nætursölu og er Reykjanesbær þar engin undantekning. Guðjón segir að nætursalan sé mjög vinsæl meðal Suðurnesjamanna en opið er til klukkan 06:00 á nóttunni á laugardögum. Margur svangur næturbröltarinn kemur við á Hlölla á leiðinni heim um helgar að sögn Guðjóns.