Karlakór Kef kertatónleikar
Karlakór Kef kertatónleikar

Viðskipti

Þrímilljónasti farþegi Icelandair á árinu fékk glaðning
Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair og Embla Waage skáru fyrstu sneiðarnar af risaköku í tilefni áfangans. VF-myndir/pket.
Föstudagur 18. desember 2015 kl. 11:02

Þrímilljónasti farþegi Icelandair á árinu fékk glaðning

Farþegafjöldi Icelandair á þessu ári fór í gær yfir þrjár milljónir. Þrímilljónasti farþeginn reyndist vera Embla Waage, 12 ára, sem fór með foreldrum sínum og tvíburasystrum til Kaupmannahafnar á flugi FI212 síðdegis í gær. Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, afhenti henni glaðning við brottfararhliðið; blómvönd og gjafabréf, og öllum farþegum í fluginu var boðið upp léttar veitingar.

Þetta er í fyrsta sinn í langri sögu Icelandair sem farþegafjöldinn í áætlunarflugi fer yfir þrjár milljónir á einu ári. Farþegafjöldinn fór í fyrsta sinn yfir tvær milljónir árið 2012, en þeir voru um 2,6 milljónir á síðasta ári. Farþegafjöldinn í ár er í samræmi við áætlanir en gert er ráð fyrir að farþegum fjölgi um 450 þúsund á næsta ári og verði í heild um 3,5 milljónir á árinu 2016.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri Icelandair, Embla Waage og foreldrar hennar, Indriði Waage og Þórhildur Ósk Halldórsdóttir og tvíburasysturnar Sigríður María og Brynja Valdís ásamt áhöfninni í fluginu til Kaupmannahafnar.

Farþegar gæddu sér á kökunni góðu.