Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Þorvaldur snýr heim
Laugardagur 8. desember 2012 kl. 03:00

Þorvaldur snýr heim

- Apótek Suðurnesja opnar á Hringbraut

Þorvaldur Árnason lyfsali er snúinn aftur til Reykjanesbæjar eftir tíu ára fjarveru og hefur opnað Apótek Suðurnesja að Hringbraut 99. Segja má að Þorvaldur sé að snúa aftur í heimahaga en hann rak apótek á sama stað um nokkurra ára skeið fram til ársins 2002 er Lyfja keypti reksturinn. Þetta er fjórða apótekið sem hann rekur, en fyrir rekur hann Lyfjaval í Mjódd og Lyfjaval í Álftamýri auk þess að reka Bílaapótekið í Kópavogi. Í viðtali við Víkurfréttir þá kveðst Þorvaldur var mjög ánægður að hefja aftur rekstur í Reykjanesbæ.

„Ég er mjög spenntur fyrir því að koma aftur á Suðurnesin og þjónusta Suðurnesjamenn,“ segir Þorvaldur. „Þetta húsnæði, sem er í minni eigu, var laust og er hannað fyrir apótek. Ég ákvað að nýta þetta tækifæri til að koma aftur til Reykjanesbæjar. Suðurnesjamenn hafa verðið duglegir að sækja til mín til Reykjavíkur og því þótti mér tilvalið að opna aftur apótek á svæðinu. Það starfa hjá mér fjórir starfsmenn sem voru að keyra frá Reykjanesbæ til höfuðborgarinnar í vinnu þannig að það var einnig hvati til að opna hér á ný. Ég er reynslunni ríkari eftir að hafa rekið lyfjaverslanir í Reykjavík í tíu ár og það er gott að geta þjónustað Suðurnesjamenn á ný.“

Hræðist ekki samkeppnina

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024

Þorvaldur er fæddur Sandgerðingur en býr nú í Garðabæ. Hann er enginn nýgræðingur á lyfjamarkaðinum í Reykjanesbæ. Hann var í 15 ár hjá Apóteki Keflavíkur en opnaði svo sjálfur einkarekið apótek árið 1996 á Hringbrautinni, en það var fyrsta apótekið sem opnaði á Íslandi eftir að ný lyfjalög tóku gildi, þar sem frjálsræði í stofnun apóteka var aukið. Árið 2002 keypti Lyfja reksturinn af Þorvaldi og þá söðlaði hann um og opnaði apótek í Mjóddinni vorið 2003.

„Apóteksrekstur var góður þegar ég fór héðan fyrir tíu árum en ég veit ekki alveg hvernig hann er í dag. Hér er samkeppni en það er af hinu góða fyrir almenning og stuðlar að lægra lyfjaverði. Ég óttast ekki samkeppnina,“ segir Þorvaldur en hver er helsta sérstaða Lyfjavals?

„Ég sem eigandi er nær rekstrinum og fólkinu sem kemur og verslar. Það er einn af kostum einstaklingsrekinna apóteka og eigendurnir eru tilbúnir að gera meira fyrir viðskiptavini sína. Þjónustan er betri.“

Þorvaldur gerir ráð fyrir því að Apótek Suðurnesja muni ná að festa sig í sessi í Reykjanesbæ á næstu árum. Þegar blaðamaður Víkurfrétta hitti fyrir Þorvald og starfsfólk hans þá voru nokkrir viðskiptavinir sem óskuðu Þorvaldi til hamingju með að vera kominn aftur á svæðið. Ljóst er að margir viðskiptavinir muna ennþá eftir Þorvaldi frá fyrri tíð. „Hér í Reykjanesbæ finnum við fyrir ánægju hjá viðskiptavinum apóteksins og staðsetningin frábær. Þetta apótek er komið til að vera,“ sagði Þorvaldur að lokum.

Úr Apóteki Suðurnesja við Hringbraut í Keflavík.