Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Þorbjörn í Grindavík valið nýsköpunarfyrirtæki ársins
Föstudagur 27. janúar 2017 kl. 09:33

Þorbjörn í Grindavík valið nýsköpunarfyrirtæki ársins

Þorbjörn hf. í Grindavík hlaut í gær nýsköpunarverðlaun Creditinfo hjá rótgrónu fyrirtæki sem veitt voru í fyrst sinn. Í tilkynningu frá Creditinfo segir að markmiðið sé að vekja athygli á mikilvægi nýsköpunar hjá öllum fyrirtækjum ekki bara sprotafyrirtækjum. Nýsköpun stuðli að framþróun fyrirtækja og auki samkeppnishæfni þeirra. 

Umsögn dómefndar um Þorbjörn hf.:

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

„Fyrirtækið byggir meginstarfsemi sína á aldagamalli þekkingu íslensks sjávarútvegs en hefur einnig verið leiðandi í nýsköpun, bæði í eigin fyrirtæki og með þátttöku í stofnun nýsköpunarfyrirtækja. Þorbjörn hf. hefur fylgt þeirri hugmyndafræði að finna aðferðir til að fullnýta sjávarfang í sinni framleiðslu með sjálfbærni að leiðarljósi. Félagið var brautryðjandi í pækilsöltun á sjó á sínum tíma og hefur tekið þátt í þróunarverkefnum við að betrumbæta flokkunarkerfi fyrir saltfiskflök. Þessi áhersla þeirra á sjálfbærni hefur leitt af sér verðmætasköpun í dótturfélögunum Haustaki og Codland. Bæði félögin nýta afurðir og skapa nýjar vörur úr hráefni sem áður var hent. Codland hefur meðal annars þróað aðferðir til að vinna Collagen úr fiskroði og framleiðir heilsudrykkinn Alda úr því. Þorbjörn hf. hefur einnig unnið að mennta- og fræðslumálum m.a. með samstarfi við Háskólann í Reykjavík og með því að bjóða unglingum í Grindavík upp á að sækja vinnuskóla til að efla áhuga ungs fólks á sjávarútvegi“.