Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Þjónustustjóri fyrirtækjaþjónustu hjá Landsbankanum í Reykjanesbæ
Föstudagur 25. janúar 2013 kl. 09:06

Þjónustustjóri fyrirtækjaþjónustu hjá Landsbankanum í Reykjanesbæ

Helgi Bogason hefur hafið störf sem þjónustustjóri fyrirtækjaþjónustu hjá Landsbankanum í Reykjanesbæ. Helgi sem er viðskiptafræðingur að mennt hefur starfað nær samfellt við bankastörf allt frá árinu 1984. Lengst af í útibúi Landsbankans í Grindavík sem afgreiðslustjóri en einnig m.a. sem sérfræðingur í útlánaþjónustu á viðskiptabankasviði Landsbankans. Eins starfaði Helgi um fjögurra ára skeið sem útibússtjóri Spkef sparisjóðs í Grindavík.

Ráðning Helga mun styrkja fyrirtækjahluta útibús Landsbankans í Reykjanesbæ enn frekar og er það í fullu samræmi við áform bankans um að veita fyrirtækjum á Suðurnesjum öfluga og góða þjónustu.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024