Bygg
Bygg

Viðskipti

Þétta raðir atvinnulífsins
Sunnudagur 25. nóvember 2012 kl. 14:00

Þétta raðir atvinnulífsins

Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR, eru samtök yfir eitt hundrað fyrirtækja úr öllum þáttum atvinnulífsins á Reykjanesi. Samtökin hafa það markmið að þétta raðir atvinnulífsins á Suðurnesjum og skapa því aðstæður til að vaxa og þróast. Eins og auglýst er hér að neðan er aðalfundur SAR nk. þriðjudag. Guðmundur Pétursson, formaður stjórnar,  hefur veitt SAR forstöðu  undanfarið. Víkurfréttir tóku hann tali og ræddu um SAR og starfið innan samtakanna.

- Hvaða félagsskapur eru Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi, SAR?
„Samtökin eru félagsskapur aðila sem tóku sig saman í maí 2010 í þeim tilgangi að reyna að skapa atvinnu. Hópurinn er ólíkur en sá þó fram á það að það yrði lítið að gera og menn sáu jafnvel fram á gjaldþrot fyrirtækja vegna þess. Menn þjöppuðu sér saman, fyrst 31 aðili en í dag eru yfir 100 aðilar í samtökunum. Nú nýverið gekk Meistarasamband byggingamanna á Suðurnesjum í samtökin og við vonumst til þess að Ferðamálasamtök Suðurnesja verði einnig aðili fljótlega.

- Hver er tilgangurinn með SAR?
„Tilgangurinn er að skapa fyrirtækjum á Reykjanesi skilyrði til að vaxa og þróast. Samtökin vinna að því að greiða götu atvinnutækifæra á Suðurnesjum og vera öflugur málsvari atvinnulífsins. Samtökin halda sjónarmiðum fyrirtækja á lofti og skapa tengsl á milli fyrirtækja,“ segir Guðmundur. Hann segir mikilvægt að samtökin komi fram sem ein rödd. Þá leggur hann áherslu á að samtökin séu ekki pólitísk og þeim sé ekki beitt í þeim tilgangi.

- Hver hafa verið helstu verkefni SAR?
„Stærstu verkefnin til þessa hafa verið tveir stórir borgarafundir sem haldnir voru í október 2010. Á fyrri fundinum fengum við m.a fulltrúa álversins í Helguvík og HS Orku til að kynna hvar verkefnið væri statt en á þeim tíma höfðum við heyrt að ágreiningur væri um ýmis atriði. Síðan þá höfum við haft fréttir af því að ágreiningurinn væri að leysast og verkefnið vonandi að komast í höfn. Á þessum fundi bönnuðum við stjórnmálamönnum að tala en héldum hins vegar annan borgarafund þar sem fulltrúar ríkisstjórnarinnar mættu og skýrðu málin frá sinni hlið“.

Guðmundur segir að skiptar skoðanir hafi verið á báðum fundunum en menn hafi þó verið sammála um að þeir hafi hrist upp í málunum. Fundirnir gerðu það einnig að verkum að fljótlega eftir þá fór SAR að vinna með ríkisstjórninni.

„Við vorum fljótlega boðaðir á alla samráðsfundi um atvinnumál á Suðurnesjum og áttum fulltrúa þar inni. Í framhaldinu átti SAR einnig í góðu samstarfi við iðnaðarráðuneytið, átti reglulega fundi með þeim um atvinnuástandið á Suðurnesjum“.

Guðmundur segir stofnun SAR hafa skipt miklu máli fyrir atvinnulífið á Suðurnesjum. Félagsskapurinn hafi komið að sinni rödd, sem annars hefði ekki verið mögulegt. Þá eigi SAR orðið fulltrúa í stjórnum Heklunnar, atvinnuþrónuarfélags Suðurnesja, í Virkjun mannauðs á Reykjanesi og verið með fulltrúa í starfshópum iðnaðarráðuneytis, svo eitthvað sé nefnt.

- Hver er staðan í atvinnulífinu á Suðurnesjum í dag?
„Staðan hér á Reykjanesi er grafalvarleg. Atvinnuleysi á meðal iðnaðarmanna er yfir 20%. Við erum að sjá opinberar tölur um 7-8% atvinnuleysi en hlutfallslega hafa lang flestir farið frá Suðurnesjum erlendis til að vinna.

Ég held að það sé skilningur hjá opinberum aðilum á þessari stöðu. Nú er að koma sú staða að fólk hefur nýtt allan sinn rétt til atvinnuleysisbóta og þarf því að leita á náðir bæjarins með framfærslu sína. Við sátum fund með Vinnumálastofnun á sínum tíma þegar atvinnuleysið var mildað með því að sköpuð voru úrræði þar sem ungu fólki var gefinn kostur á að komast í nám. Nú er margt af þessu fólki að ljúka námi og er ennþá án atvinnu.
Ástandið er þannig á Suðurnesjum að við verðum að setja álverið í gang með öllum þeim ráðum sem til eru. Ef það verður gert þá er kreppunni á Íslandi lokið eins og við þekkjum hana og þá byrjar uppbyggingarstarfið. Ég er að vonast til þess að tilkynnt verði um eitthvað slíkt nú fyrir áramót. Það verði jólagjöfin til Suðurnesjamanna, að aðilar sem vita betur en ég um þetta mál, segi frá því. Samtök atvinnurekenda á Reykjanesi beina þeim tilmælum til þeirra aðila að þeir komi með þessar upplýsingar fyrir jól.“

Þetta verða gríðarlega erfið jól hjá Suðurnesjamönnum, segir Guðmundur en bætir við að það sé þó farið að sjá í ljós við enda ganganna. Þannig sé núna verið að bjóða út meira af smáum útboðum en sést hafi um langan tíma.

Úti á Reykjanesi er verið að byggja stóra fiskeldisstöð. Í Sandgerði er verið að fara að byggja stórt fiskvinnsluhús og annað hefur verið í smíðum frá því í vor. Þá er verið að byggja hjúkrunarheimili í Reykjanesbæ og allt þetta hefur áhrif á markaðinn, og er jákvætt segir Guðmundur.

Næsta sumar er stefnt að því að rífa stóra flugskýlið á Keflavíkurflugvelli og það mun skapa talsverða vinnu. Þá segir Guðmundur að framundan séu fleiri verkefni sem eru á leiðinni í útboð en komi í ljós á næstu vikum.

- Hver eru helstu verkefni SAR á allra næstu misserum?
„Við höfum haldið atvinnumálafundi í öllum sveitarfélögum Suðurnesja og viljum halda því áfram til að halda mönnum upplýstum. Þá viljum við koma á útboðsvakt, þar sem opinberir aðilar láta vita af því hvaða verkefni séu væntanleg í útboð. SAR með sína reynslu þarf að leggja áherslu á að þétta böndin á milli aðila og að samstaðan sé eins mikil og hægt er að hafa hana. Við viljum að sveitarstjórnir á Suðurnesjum og ríkisstjórnin viti að hér er aðili sem er annt um atvinnulífið á Suðurnesjum,“ sagði Guðmundur Pétursson hjá SAR.
 

Bílakjarninn
Bílakjarninn