Tal styrkir stöðu sína á Suðurnesjum
Tal hf. hefur stóreflt dreifisvæði sitt í Reykjanesbæ. Sendum hefur fjölgað og þannig hefur verið fyllt upp í þau auðu svæði sem verið hafa en dreifisvæði Tals er nú álíka stórt og dreifisvæði Landssímans. Sendisvæðið á Reykjanesi mun verða þétt enn meira á næstu misserum. Umboðsaðili Tals hf. í Reykjanesbæ er Rafeindatækni við Tjarnargötu í Keflavík.
„Við erum komin með dreifingu um allt land og náum nú til 98 % landsmanna sem var áður um 90%, þanngi að þetta er stóraukin þjónusta við viðskipavini Tals“, segir Ársæll Baldursson markaðsstjóri Tals hf.
Fyrirtækið hefur að undanförnu verið með markaðsátak í gangi í Reykjanesbæ í tengslum við aukna þjónustu Tals hf. við viðskiptavini sína. „Við höfum fengið mörg ný fyrirtæki á svæðinu í viðskipti við okkur í kjölfar átaksins en við erum einnig með fjölmarga notendur á varnarsvæðinu“, segir Ársæll og bætir við að viðskiptavinahópurinn hér sé mjög tryggur.
Ársæll afhenti þremur heyrnaskertum einstaklingum hjá Þroskahjálp Suðurnesja, gemsa sl. þriðjudag, fyrir hönd Tals. „Þessi tækni hefur þegar gjörbreytt lífi þessa fólks og með því að gefa þeim þessa síma, viljum við létta þeim lífið og kynna þeim þá möguleika sem kerfið býður uppá. Þegur hefur komið í ljós að símarnir sem við gáfum heyrnaskertum í Reykjavík, hafa komið fólki þar að góðum notum. Þeir rjúfa einangrun þessa hóps sem nú getur verið í sambandi hvar og hvenær sem er.“
Svokölluð GPRS tækni hefur bætt við nýjum notkunarmöguleikum á gemsum og fartölvum. Með henni er hægt að tengja saman fartölvur og farsíma. „Fólk getur tekið tölvuna með sér hvert sem er og verið í samskiptum í gegnum GSM-kerfið, sítengt við internetið“, segir Ársæll en þetta er einmitt þjónusta sem Tal hf. býður viðskiptavinum sínum.