Taktu þátt í könnun markaðsfræðinema við FS
Í markaðsfræði í Fjölbrautaskóla Suðurnesja er nú unnið að könnunum varðandi markaðssetningu og taka nemendur sér ýmiss viðfangsefni fyrir. Meðal þeirra er könnun um ýmislegt tengt lágvöruverðsverslunum sem unnin var af Ástu Erlu Ósk Vignisdóttur, Elfu Ingvadóttur og Guðnýju Gunnarsdóttur.
Þær yrðu mjög þakklátar ef að fólk gæfi sér tíma til þess að svara örfáum spurningum til þess að gera könnunina marktækari. Niðurstöðurnar verða að öllum líkindum kynntar á þartilgerðri heimasíðu þegar að unnið hefur verið úr þeim.