Sumarsýning hjá Benna í Reykjanesbæ um helgina
Bílabúð Benna fagnar sumarkomunni í Reykjanesbæ og blæs til glæsilegrar bílasýningar laugardaginn 21. maí. Öllu verður til tjaldað hjá fyrirtækinu; frumsýningar, veitingar og reynsluakstur.
Í fréttatilkynningu kemur fram að úrval bíla verði til sýnis, meðal annars frumsýndir hinn splúnkunýi fjórhjóladrifni sportjeppi, Tívolí, frá SsangYong og Bíl ársins í Evrópu, Opel Astra, í stórglæsilegri stationútgáfu. Einnig verða á svæðinu verðalunagripir frá Porsche; hinn óviðjafnanlegi Porsche Cayenne og þrælmagnaði sportjeppinn Macan. Allir eru velkomnir á Njarðarbraut 9, laugardaginn 21. maí, milli kl. 12:00 til 16:00. Boðið verður upp á grillaðar pylsur, Prins Póló og gos á meðan birgðir endast.