Suðurflug teygir út anga sína

Suðurflug hefur vaxið fiskur um hrygg síðustu tvö ár. Nú er Suðurflug eitt af þremur stærstu flugafgreiðsluaðilum á Keflavíkurflugvelli. Með stórauknum fjölda viðskiptavina samfara mikilli aukningu á starfseminni á Keflavíkurflugvelli hefur fyrirtækið tvöfaldað starfsmannafjöldann. Suðurflug er eitt þeirra sprotafyrirtækja sem hefur haldið áfram að vaxa á Keflavíkurflugvelli þótt varnarliðið hafi haldið á braut.
Mynd frá undirritun afgreiðslusamningsins.