Stjórnarformaður Spkef er nýr framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar
Ásta Dís Óladóttir mun á næstu dögum taka við starfi framkvæmdastjóra Fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli. Hún er með er með meistaragráðu í stjórnun og stefnumótun og doktorspróf í alþjóðlegum viðskiptum frá Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn.
Ásta Dís hefur undanfarin ár starfað við Háskólann á Bifröst sem dósent í viðskiptafræði, forstöðumaður rannsóknaseturs um alþjóðleg viðskipti og forseti Viðskiptadeildar, en hún var fyrst kvenna til að gegna stöðu deildarforseta í viðskiptadeild háskóla hér á landi.
Hún var áður aðjúnkt við Viðskiptadeild Háskóla Íslands ásamt því sem hún gegndi stöðu markaðs- og kynningarstjóra deildarinnar í um 4 ár. Þá hefur hún sinnt stundakennslu við Háskólann í Reykjavík og hefur starfað undanfarin ár við Viðskiptaháskólann í Kaupmannahöfn.
Ásta Dís hefur flutt fjölmarga fyrirlestra og erindi á fræðasviði sínu hér á landi og á erlendum vettvangi og birt greinar í innlendum og erlendum tímaritum. Hún hefur víðtæka reynslu og hefur m.a. gegnt stjórnunarstöðum á ýmsum sviðum atvinnulífsins, ásamt því að koma að rekstri, þ.m.t. verslunarrekstri.
Hún hefur á undanförnum árum setið í stjórnum fjölmargra fyrirtækja hér á landi sem og erlendis. Hún er stjórnarformaður SpKef sparisjóðs, varaformaður stjórnar Frumtaks, fjárfestingasjóðs ásamt því að sitja í fjárfestinganefnd sjóðsins og situr í stjórn Húsasmiðjunnar. Þá var Ásta Dís stjórnarformaður Mentor, Norrænna mynda, Heilsuverndarstöðvarinnar og fleiri fyrirtækja, átti sæti í endurskoðunarnefnd Landsvirkjunar og háskólaráði Háskólans á Bifröst.
Ásta Dís er í sambúð með Jakobi Bjarnasyni og á hún tvær dætur.
Frá kynningu í Fríhöfninni í ágúst sl.