Bílakjarninn hekla
Bílakjarninn hekla

Viðskipti

Startup Iceland með ráðstefnu á Ásbrú
Þriðjudagur 15. maí 2012 kl. 10:39

Startup Iceland með ráðstefnu á Ásbrú

Global Startup Community mun standa að fyrstu Startup Iceland ráðstefnunni þann 30. maí 2012 í Andrews Theater á Ásbrú (Keflavík).

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024

Á Startup Iceland ráðstefnunni koma saman frumkvöðlar, fjárfestar og fyrirmenni hvaðan af úr heiminum til þess að efla þróun sjálfbærra nýsköpunnar vistkerfa.

Fyrsta Startup Iceland ráðstefnan verður haldinn þann 30. maí 2012, í Andrews Theater á Ásbrú (Keflavík). Þessi alþjóðlegi atburður teflir saman frumkvöðlum, fjárfestum og fyrirmönnum frá nokkrum af heitustu nýsköpunar samfélögum heims. Ísland hefur mikla nýsköpunar og frumkvöðla menningu og er í stakk búið til að verða áhrifamikill þáttakandi í nýsköpun á heimsvísu. Startup Iceland ráðstefnan leitast við að efla alþjóðleg áhrif Íslands og tengja frumkvöðla og aðra aðila í nýsköpun til að efla sjálfbæra efnahagslega (vistkerfa) þróun á heimsvísu.

Þátttakendur í Startup Iceland koma frá Íslandi, Bandaríkjunum, Kanada, Evrópu, Bretlandi, Asíu, Skandinavíu og Suður-Afríku. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, mun opna ráðstefnuna með setningar ávarpi. Dagskráin er þétt á þessari eins dags ráðstefnu, efni sem verða rædd eru t.d. árangur og erfiðleikar Íslenskra frumkvöðla, hvernig skal búa til staðbundna samninga til að hefja árangursríka frumkvöðlastefnu innan sveitafélaga, mikilvægi styrkja og fjárhagslegra tækifæra í nýsköpun, nýsköpun í orkunýtingu og nýting sjálfbærra orkulinda, hið nýja frumkvöðla endurreisnartímabil og nýting á samfélagsfrumkvöðlum til að knýja áfram vörumerki.

„Ísland er frábær staður til að hleypa af stokkunum nýjum hugmyndum og ráðstefnu til að koma af stað nýju Startup samfélagi. Ísland hefur framúrskarandi innviði, sögu um nýsköpun og frumkvöðlastarf, ungt og vel menntað fólk. Ísland er lítið, og þar af leiðandi styttri leiðir og hraðari þróun á vöru, sem er einstakur eiginleika sem við ætlum að nota sem dæmisögur fyrir önnur samfélög á fyrstu Startup Iceland ráðstefnu okkar" sagði stofnandi Startup Iceland, Bala Kamallakharan.

Auk Startup Iceland ráðstefnunnar 30.05.12, munu þátttakendur hafa tækifæri til að taka þátt í Hackathon samkeppni þann 29. Maí 2012 í Háskólanum í Reykjavík sem og fundaröð með leiðandi áhrifa aðilum í Startup samfélaginu, sem og ævintýra vettvangsferð og spennandi tengiliða tækifærum.


Þeir sem koma fram á Startup Iceland ráðstefnunni eru:
Brad Burnham, stofnandi, Union Square Ventures
Brad Feld, framkvæmdastjóri, Foundrey Group
Ólafur Ragnar Grímsson, Forseti Íslands
Gunnar Hólmsteinn, framkvæmdastjóri, CLARA
Eiríkur Hrafnsson, forstjóri, GreenQloud
Rebeca Hwang, forstjóri, younoodle.com
Hilmar B. Janusson, EVP R&D, Össur
Hilmir Ingi Jónsson, forstjóri, Remake Electric
Rebecca Kantar, stofnandi og forstjóri, BrightCo.
Ísak Kato, fjármálastjóri, Verne Global
Alison MacNeil, forstjóri, GogoYoko
Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri, CCP
Sarah Prevette, stofnandi og forstjóri, Sprouter.com og BetaKit
Rakel Sölvadóttir, stofnandi, Skema
Helga Valfells, MD, NSA, Nýsköpunarsjóður Íslands
Matt Wilson, Co-Founder, Under30CEO
Ted Zoller, Kauffman Foundation Senior Fellow

Startup Iclenad er styrkt af: Arion banki, Auromatrix, Auro Fjárfesting Partners, Ásbrú Enterprise Park, Icelandair, Icelandic Glacial, Innovit, Kosmos og Kaos, GRE.is, US Embassy í Reykjavík, NSA, Háskólinn í Reykjavík og fleiri.

Um Startup Iceland
Startup Iceland ráðstefnan er árleg ráðstefna á Íslandi þar sem leiðtogar í alþjóðlegu Startup samfélagi koma saman til að efla lausnir fyrir sjálfbær Startup vistkerfi á heimsvísu. Fjárfestirinn Bala Kamallakharan stofnað Startup Iceland árið 2012 til að sýna fram á lifandi sjálfbært samfélag á Íslandi og stuðla að þróun á áhrifamesta Startup neti á heimsvísu. Frekari upplýsingar má nálgast á ww.startupIceland.com.