Starfsmenn DHL verðlaunaðir fyrir þjónustulund
Á þriðja tug Suðurnesjamanna starfa hjá fyrirtækinu á Keflavíkurflugvelli.
Átta íslenskir starfsmenn alþjóðlega flutningafyrirtækisins DHL Express fengu viðurkenningar á dögunum fyrir framúrskarandi þjónustulund. Fyrirtækið er með afgreiðslu á Keflavíkurflugvelli og þar starfa á milli 25 til 30 Suðurnesjamenn hjá fyrirtækinu.
Verðlaunin bera heitið Can Do Awards eða eins og John Pearson, forstjóri DHL í Evrópu orðar það þá eru þau viðurkenning til starfsmanna sem eru nánast brjálæðislega þjónustulundaðir (e.insanely customer centric).
Starfsmenn DHL Express á Íslandi stóðu frammi fyrir erfiðu verkefni þann 6. mars sl. þegar óhemju slæmt veður gekk yfir suð-vesturhorn landsins. Óveðrið olli miklu raski á samgöngum, fólk komst ekki leiðar sinnar og fólksbílar sem og almenningsvagnar sátu fastir víða um borg og bý í sköflum og snjófjúki. Slíkur veðurofsi getur auðveldlega lamað starfsemi fyrirtækja og stofnana, ekki síst flutningafyrirtækja. Innflutningur dagsins sat fastur í fraktvél Icelandair Cargo, en ekki reyndist unnt að opna hlera vélarinnar vegna mikilla vindhviða í Keflavík. Viðskiptavinir fyrirtækisins voru í óvissu með mikilvægan útflutning dagsins sem þurfti að sækja víða um höfuðborgarsvæðið og koma til Keflavíkur fyrir brottför kl. 17:00 frá Keflavíkurflugvelli.
Eftir nokkra rekistefnu ákváðu bílstjórar DHL í samráði við yfirmenn sína að taka slaginn og leggja á Reykjanesbrautina um hádegisbilið þennan dag. Í stað þess að senda átta bíla eins og vanalega tvímenntu bílstjórarnir á fjóra bíla, öryggisins vegna, þannig að annar þeirra gæti ýtt ef bíllinn sæti fastur í ófærðinni. Með miklum dugnaði náðu bílstjórarnir að sækja allan þær vörur sem þurfti a koma í útflutning og skiluðu honum aftur til Keflavíkurflugvallar í tæka tíð.
Dugnaður bílstjóranna vakti athygli og barst DHL á Íslandi fjölmörg símtöl og tölvupóst frá þakklátum viðskiptavinum. Framganga þeirra þennan dag barst einnig til eyrna forstjóra DHL Express í Evrópu sem ákvað að verðlauna þá eins og áður sagði.
Þess má geta að DHL Express rekur 4.000 starfstöðvar í 220 löndum og hjá félaginu starfa meira en 100 þúsund manns.