HSS
HSS

Viðskipti

Stálpípuverksmiðja fyrir 6,5 milljarð króna
Fimmtudagur 3. apríl 2003 kl. 10:41

Stálpípuverksmiðja fyrir 6,5 milljarð króna

-framkvæmdin kostar um 10 milljónir á dag á framkvæmdatíma

Á mánudag gaf fyrirtækið International Pipe and Tube út tilkynningu þar sem staðfest var að samningar við verktaka um byggingu Stálpípuverksmiðju hefðu náðst. Fyrirhugað er að reisa 18 þúsund fermetra verksmiðju í Helguvík sem mun framleiða 175 þúsund tonn af hágæða stálpípum segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Heildarkostnaður verkefnisins er um 84 milljónir dala eða tæpir 6,5 milljarðar króna. Undirbúningur framkvæmda í Helguvík er þegar hafinn og gerir IPT ráð fyrir að verksmiðjan hefji starfsemi sína snemma árs 2005. Gert er ráð fyrir að við verksmiðjuna starfi 200-240 starfsmenn.Daewoo International Corporation mun stjórna byggingu verksmiðju og skrifstofuaðstöðu í Helguvík í samstarfi við Íslenska aðalverktaka og samstarfsaðila frá Kóreu. Þeir eru ábyrgir fyrir byggingu verksmiðjuhússins og skrifstofu- og starfsmannaaðstöðu. Daehyun Tech Company frá Suður Kóreu og Kusakabe Electric & Machinery Company frá Japan munu skipuleggja vinnsluferlið og leggja til framleiðslutækin þar sem notast verður við nýjasta tæknibúnað á þessu sviði.
Það er ljóst að koma þessa fyrirtækis á Suðurnesin mun skipta sköpum varðandi atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Aðilar sem Víkurfréttir hafa rætt við eru sammála um að verkefnið sé það stærsta sem unnið hafi verið á svæðinu í mörg ár. Gert er ráð fyrir að við verksmiðjuna starfi á milli 200 til 240 manns. Ljóst er að margfeldisáhrifin verða mikil hvað varðar þjónustu, bæði í opinbera- og einkageiranum. Þrátt fyrir að fulltrúar bæjarstjórnarinnar vilji ekki formlega fagna þessum áfanga fyrr en IPT hefur greitt tryggingar fyrir verkefninu þá hafa aðilar sem Víkurfréttir ræddu við sagt að nær engar líkur séu á því að verkefnið verði ekki að veruleika. Fyrirtækið hefur lagt út í mikinn kostnað við allan undirbúning og samið hefur verið við stórfyrirtæki á alþjóðlega mælikvarða til að sjá um framkvæmdina. Samkvæmt samningi sem undirritaður var á sínum tíma á milli fyrirtækisins og bæjarstjórnar Reykjanesbæjar hefur IPT tíma fram í maí til að greiða tryggingar fyrir verkinu.
Gert er ráð fyrir að verksmiðja taki til starfa eftir um tvö ár eða snemma árs árið 2005. Ef reiknað er með því að framkvæmdir við byggingu verksmiðjunnar hefjist í lok maí hafa verktakarnir um 22 mánuði til að reisa verksmiðjuna. Miðað við að kostnaður við byggingu verksmiðjunnar sé um 6,5 milljarðar króna og að byggingatíminn sé um 22 mánuðir þá er beinn byggingakostnaður um 10 milljónir króna á dag á framkvæmdatímanum.

Starfsmannaþörfin um helmingur af atvinnuleysisskránni

Þann 1. apríl voru 454 einstaklingar skráðir atvinnulausir á Suðurnesjum, 208 karlar og 246 konur. Ef verksmiðjan væri að opna í dag þá myndi helmingur þeirra sem eru á atvinnuleysisskrá geta fengið atvinnu í verksmiðjunni. Einnig má reikna með að töluverður fjöldi starfa skapist í þjónustugeirum vegna tilkomu verksmiðjunnar.

Hvaða fyrirtæki er International Pipe and Tube?

Fyrirtækið International Steel Industries L.P. er eignarhaldsfélag International Pipe and Tube (IPT) sem hyggst reisa Stálpípuverksmiðju í Helguvík. Þar til fyrir nokkrum árum lagði fyrirtækið helsta áherslu á að versla með stál á alþjóðamörkuðum en sá markaður er gríðarlega stór í heiminum og veltir hundruð milljörðum dollara. Stálpípuverksmiðjan í Helguvík er önnur verksmiðjan sem fyrirtækið reisir, en í fyrra var gangsett verksmiðja í Eistlandi við höfnina Muuga nálægt Tallinn. Verksmiðjan sérhæfir sig í galvaniseringu járns og er áætluð framleiðslugeta um 3 milljónir tonna af stáli árlega, miðað við full afköst. Byggingarkostnaður verksmiðjunnar var um 205 milljónir dollara eða tæpir 16 milljarðar íslenskra króna og komu þekkt alþjóðleg fyrirtæki að byggingu verksmiðjunnar. Fjárfesting fyrirtækisins í Eistlandi er sú stærsta í landinu til þessa á sviði iðnaðar og skapar um 150 manns atvinnu. Verksmiðjan tók til starfa árið 2002.
Á heimasíðu IPT kemur fram að innan fyrirtækisins séu sérfræðingar sem hafi yfir 30 ára reynslu af stáliðnaðinum. Stefna IPT er að reisa fullkomnar stálpípuverksmiðjur við hafnir víða um heim og er bygging verksmiðjunnar í Helguvík eitt skref í þeim áætlunum. Helstu markmið fyrirtækisins eru að reisa verksmiðjur á hafnarsvæðum þar sem ódýra orku er að fá og á svæðum þar sem auðvelt er að nálgast aðföng. Höfuðstöðvar IPT eru í Philadelphiu á austurströnd Bandaríkjanna.


Viðbrögð bæjarfulltrúa

Árni Sigfússon, bæjarstjóri
Bæjarstjóri er að vonum ánægður með að samningar hafi tekist um byggingu verksmiðjunnar en hann vill ekki fagna fyrr en fyrirtækið hefur lagt fram tryggingar fyrir verkinu. Árni segir að það gefi auga leið að verkefni af þessari stærðargráðu skipti miklu máli fyrir Suðurnesin í heild sinni og nefnir sem dæmi að starfsmannaþörf verksmiðjunnar sé um helmingur af starfsmannaþörf Fjarðaráls. Árni segir að vegna nálægðar við höfuðborgarsvæðið séu margfeldisáhrifin meiri á Suðurnesjum vegna Stálpípuverksmiðjunnar heldur en margfeldisáhrif vegna álversframkvæmda á Austurlandi. Hann horfir bjartsýnn til áframhaldandi uppbyggingar í Helguvík: „Það eru fleiri verkefni sem við höfum kynnt, en það eru verkefni sem við getum ekki sagt frá á þessari stundu. Framtíðarmöguleikar Helguvíkursvæðisins eru gríðarlegir. Iðnaðarsvæðið er á milli 50 og 60 hektarar og við erum þegar farnir að skipta svæðinu niður í lóðir.“

Þorsteinn Erlingsson formaður atvinnu- og hafnarráðs
Undirbúningur fyrir Helguvíkuriðnaðarsvæðið hófst þegar Reykjanesbær varð til árið 1994. Þá höfðum við burði til að fara í framkvæmdir í Helguvík og reisa 150 metra stálþil, en við fengum ríkisstyrk út á hið nýja sveitarfélag. Við ákváðum að skapa aðstöðuna og það sem ræður mestu um að þetta fyrirtæki hefur tekið ákvörðum að reisa verksmiðju hér er ný skattalöggjöf sem hentar innlendum sem erlendum fyrirtækjum. Ég er gríðarlega ánægður að sjá svona stóra verksmiðju verða að veruleika hér á Suðurnesjum sem er algjörlega á ábyrgð erlendra aðila sem koma með erlent fjármagn í verkefnið. Við sem störfum að atvinnumálum á svæðinu megum aldrei slaka á og þó við séum að verða vitni að þessum ánægjulegu tíðindum þá munum við halda áfram að leita eftir fyrirtækjum til að koma á svæðið.

Kjartan Már Kjartansson, bæjarfulltrúi Framsóknarflokksins
Mín viðbrögð eru fyrst og fremst gleði og ánægja með þennan áfanga, en verksmiðjan er ekki risin og við höfum ákveðinn fyrirvara ennþá. Það sem mér finnst ánægjulegt er að sjá þetta verkefni sem hófst í tíð fyrrverandi bæjarstjórnar þróast á svona jákvæðan og skemmtilegan hátt. Ég tel að framtíðarmöguleikar Helguvíkur sem atvinnusvæðis séu gríðarlegir og ég fullyrði að það fá svæði í Evrópu sem hafa á að skipa jafn góðri hafnaraðstöðu og jafnmiklu ónýttu landrými eins og í Helguvík.


Jóhann Geirdal, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Við fögnum þessum áfanga þó enn sé ekki búið að leggja fram tryggingar þá eru yfirgnæfandi líkur á að af þessu verði. Þetta mun skapa töluverða atvinnu og það sem meira er, góðar tekjur fyrir höfnina og ekki veitir af. Vonandi er að uppbygging haldi áfram á þessu svæði.


VF-ljósmynd: Þorsteinn Erlingsson formaður atvinnu- og hafnarráðs, Pétur Jóhannsson hafnarstjóri og Árni Sigfússon bæjarstjóri út í Helguvík þar sem framkvæmdir vegna Stálpípuverksmiðjunnar eru hafnar.

[email protected]
Bílakjarninn
Bílakjarninn