Stálpípuverksmiðja: Búist við lokasvari í mars
Búist er við að framkvæmdum við lóð Stálpípuverksmiðju í Helguvík ljúki í mars og að svör frá fyrirtækinu berist um svipað leyti. Að sögn Þorsteins Erlingssonar formanns atvinnu- og hafnarráðs Reykjanesbæjar vinnur International Pipe and Tube að fjármögnun verksmiðjunnar. „Þetta verkefni er ekki í höfn fyrr en fyrirtækið hefur lokið fjármögnun eins og við höfum alltaf sagt,“ segir Þorsteinn, en gert er ráð fyrir að á milli 200 til 240 manns komi til með að starfa við verksmiðjuna. Aðspurður um hvort heyrst hafi frá Japanska fyrirtækinu sem er að skoða möguleika á að reisa álþynnuverksmiðju á Íslandi sagði Þorsteinn að búist væri við svörum í mars. „Við höfum verið í sambandi við þessa japönsku aðila og búumst við svari frá þeim í mars hvort þeir yfir höfuð ætli sér að reisa verksmiðju og þá hvort þeir velji Ísland sem land fyrir þá verksmiðju.“
Horft er til Helguvíkursvæðisins sem framtíðaruppbyggingarsvæðis á sviði Iðnaðar á Suðurnesjum og segir Þorsteinn að verið sé að skoða nokkur verkefni. „Sum þeirra eru raunhæf og önnur ekki, en meira get ég ekki sagt,“ sagði Þorsteinn í samtali við Víkurfréttir.
VF-ljósmynd/Hilmar Bragi: Frá upphafi framkvæmda við lóð Stálpípuverksmiðjunnar í Helguvík.