Sprotafyrirtæki af Suðurnesjum keppir til úrslita í Gullegginu 2012
Suðurnesjamaðurinn Þóranna K. Jónsdóttir og verkefni hennar Markaðsmál á mannamáli er í hópi 10 viðskiptahugmynda sem keppa til úrslita í Gullegginu 2012.
Sigurvegari keppninnar hlýtur verðlaunabikarinn Gulleggið 2012, eina miljón í peningum og ráðgjöf frá Innovit. Þá verða ýmis aukaverðlaun veitt frá bakhjörlum og styrktaraðilum keppninnar en alls nema heildarverðlaun Gulleggsins 5.000.000 króna. Verðlaunaafhendingin fer fram á Háskólatorgi Háskóla Íslands 31. mars klukkan 15:00 en verðlaunin veitir Katrín Jakobsdóttir menntamálaráðherra.
Alls bárust 224 viðskiptahugmyndina í Gulleggið 2012. Á sjö vikum hafa sérfræðingar aðstoðað þátttakendur við gerð viðskiptaáætlana og uppbyggingu viðskiptahugmynda. Þátttakendur hafa átt kost á að sækja námskeið og vinnusmiðjur skipulagðar af Innovit þar sem sérfræðingar frá Landsbankanum, KPMG, Advel lögmönnum, Nova, Marel og Nóa-Síríusi sáu um fyrirlestra og leiðsögn.
Gulleggið frumkvöðlakeppni hefur farið vel fram síðustu ár og vaxið með hverju árinu. Alls hafa um 800 hugmyndir verið sendar inn til þátttöku um Gulleggið þau fjögur ár sem keppnin hefur verið haldin en keppnin í ár er sú fimmta í röðinni.
Gulleggið frumkvöðlakeppni er fyrst og fremst stökkpallur fyrir framúrskarandi viðskiptahugmyndir og vettvangur þjálfunar og tengslanets fyrir íslenska háskólanemendur, nýútskrifaða og frumkvöðla. Með öflugum stuðningi, námskeiðum og ráðgjöf sem keppendum stendur til boða samhliða keppninni er það markmið Innovit að skapa grundvöll fyrir nýjum fyrirtækjum og verðmætasköpun á Íslandi, segir í tilkynningu.