Sparisjóðurinn í Keflavík úthlutar námsstyrkjum

Ólafur Arnbjörnsson, skólameistari Fjölbrautaskóla Suðurnesja, formaður dómnefndar
Skúli Thoroddsen, forstöðumaður Miðstöðvar símenntunar á Suðurnesjum
Aðalheiður Héðinsdóttir, framkvæmdastjóri Kaffitárs.
Í gegnum tíðina hefur Sparisjóðurinn í Keflavík stutt við bakið á námsfólki frá Suðurnesjum með ýmsum hætti og eru styrkveitingarnar hluti af Námsmannaþjónustu Sparisjóðsins. Hjá Sparisjóðnum stendur námsmönnum til boða margvísleg fjármálaþjónusta og má þar m.a. nefna hagstæð lán til námsmanna vegna tölvukaupa og bókastyrki sem úthlutaðir eru til 25 námsmanna í byrjun hverrar skólaannar.
Sparisjóðurinn í Keflavík hefur ætíð styrkt íþrótta- og menningarstarf á starfssvæði sínu og eru námsstyrkirnir mikilvægur hluti af því starfi. Námsstyrkir hafa nú verið veittir tólf ár í röð og hafa samtals 45 námsmenn fengið styrki.