Sparisjóðurinn í Keflavík og Sparisjóður Ólafsvíkur sameinast

Í hinum sameinaða sjóði munu stofnfjáreigendur í Sparisjóði Ólafsvíkur eiga u.þ.b. 3,2% en eigendur stofnfjár í Sparisjóðnum í Keflavík 96,8%. Rekstur beggja sjóða hefur gengið vel og þeir hyggjast halda áfram stöðu sinni sem máttarstólpar í heimabyggð. Það er markmið stjórna sjóðanna með tillögu um sameiningu að efla starfsemi á starfssvæðum sínum og sækja fram á nýjum vettvangi. Stjórnirnar telja sameiningu sparisjóða nauðsynlega til að mæta kröfum tímans um alhliða og hagkvæma fjármálaþjónustu við einstaklinga og fyrirtæki. Þau markmið fara saman við þá skyldu að efla hag stofnfjáreigenda og starfsfólks sjóðanna, segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.