SPARISJÓÐURINN HEFUR TENGST VERÐBRÉFAÞINGI ÍSLANDS
Sparisjóðurinn í Keflavík er orðinn aðili að Verðbréfaþingi Íslands og getur þar með átt bein viðskipti með hlutabréf og önnur verðbréf. Er þetta í fyrsta skipti sem boðið er upp á þessa þjónustu hér á Suðurnesjum.Þessi þjónusta fer vel af stað að sögn Þrastar Leóssonar, forstöðumanns hagdeildar og fjárstýringar hjá Sparisjóðnum, en hann hefur umsjón með þessari starfsemi af hálfu Sparisjóðsins. „Við erum nú með beina tengingu við Verðbréfaþing Íslands og þurfum ekki lengur að fara í gegnum aðra aðila”. Þröstur sagði að töluverð viðskipti með hlutabréf hafi átt sér stað þann tíma sem boðið hefur verið upp á þessa þjónustu. „Með þessu erum við komnir með vísi að viðskiptastofu og er ætlunin að í framtíðinni verði boðið upp á alla þá þjónustu sem viðskiptastofa býður upp á. Meðal annars skuldabréfaútboð, afleiðuviðskipti, skráning hlutafélaga á V.Þ.Í., ráðgjöf og fl.”. Auk þess að bjóða upp á kaup og sölu verðbréfa á verðbréfaþinginu getur Sparisjóðurinn haft milligöngu um viðskipti með hlutabréf í fyrirtækjum sem ekki eru skráð á þinginu s.s. OZ og Íslensk erfðagreining.