Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Söluumboð Heklu í Reykjanesbæ afhendir fyrstu eintökin af nýjum sendibíll ársins 2004
Sunnudagur 26. október 2003 kl. 14:52

Söluumboð Heklu í Reykjanesbæ afhendir fyrstu eintökin af nýjum sendibíll ársins 2004

Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum var hinn nýji Volkswagen Transporter kjörinn sendibíll ársins 2004 á alþjóðlegri sendibílasýningu sem fram fer í Amsterdam. Bifreiðin verður kynnt hér á landi í innan tíðar en söluumboð HEKLU í Reykjanesbæ, afhenti þó fyrstu bílanna í dag, föstudag.  Það voru útgerðarfyrirtækin Nesfiskur og Guðdís e.h.f. sem fengu bílanna afhenta af Kjartani Steinarssyni, umboðsmanni HEKLU í Reykjanesbæ.
 
"Volkswagen Transporter hefur alltaf verið með frábæra hlutdeild á vinnubílamarkaðnum hér á Suðurnesjum. Það er því mikill heiður fyrir okkur að fá að afhenda fyrstu bílanna hér á landi til viðskiptavina okkar í Reykjanesbæ. Við bindum miklar vonir við bílinn, enda eldri gerð hans afburðabíll. Nýji bíllinn er frábær í umgengni, býður upp á mikla aksturseiginleika og hægt að fá í mörgum mismunandi útfærslum. Auk þess spillir ekki fyrir að verðið er frábært."  Kjartan Steinarsson, umboðsmaður HEKLU
 
18 manna dómnefnd ritstjóra og útgefanda helstu viðskiptatímarita Evrópu sæmdi hinn nýja Transporter þessum ágætu verðlaunum.   Hinn nýi VW Transporter kom á markaðinn í maí sl. og fékk heil 115 stig af 126 mögulegum. Betri árangur hefur ekki náðst í tólf ára sögu þessarar keppni.
 
 Pieter Wieman formaður dómnefndar hélt lofræðu þar sem hann útskýrði ástæður þess að sigur féll svo ótvírætt í skaut nýja sendibílnum frá Volkswagen. "Volkswagen hefur tekist hið ómögulega. Nýja Transporter-bifreiðin er jafnvel enn betri en fyrirrennari hennar, en þar var um afburðabifreið að ræða. Um að ræða atvinnubifreið þar sem ekki er slakað á neinum kröfum, með aukinni flutningsgetu, nýrri og enn öflugri vél en áður og bættum aksturseiginleikum".
Dómnefnd hrósaði Transporter-sendibílnum fyrir vélina og sagði að ný fimm strokka díselvél með beinni innspýtingu og nýr sex gíra gírkassi gerði það að verkum að ökumanninum fyndist að hann væri að aka sportbíl sem hann gæti ekki hugsað sér að yfirgefa.
Bifreiðin er framhjóladrifin og með nýjum fjaðrabúnaði sem hannaður er hjá atvinnubíladeild Volkswagen og þannig fær bifreiðin aksturseiginleika sem nær jafnast á við fólksbifbifreið. Dómnefndin var einnig mjög hrifin af þeirri áherslu sem lögð er á að hlusta á tillögur notenda sjálfra um hvað þeir vilja hafa í bílum sem þeir kaupa. Þannig hafa orðið til margar snjallar og hagnýtar lausnir hvað varðar öryggi og nýtingu. Bestu mögulegu vinnuvistfræðilegu lausnir gera hinn nýja Transporter að einstökum atvinnuvettvangi.
Bernd Wiedemann, talsmaður framkvæmdastjórnar atvinnubifreiðadeildar Volkswagen, var upp með sér á verðlaunaafhendingunni í Amsterdam yfir því að geta fullyrt að nýi Volkswagen sendibíllinn væri í fararbroddi, líkt og fyrirrennari hans. Hann bætti því við að eldri gerðin hefði í 13 ára sögu sinni fengið á fjórða tug verðlauna, bæði í Þýskalandi og erlendis, og að á sendibílinn væri jafnvel skráð heimsmet í heimsmetabók Guinness.
Nýja Volkswagen sendibifreiðin hefur þegar fengið nafnbótina "Sendibíll ársins 2003" í Þýskalandi og enska tímaritið "What Van?" valdi hana líka sem "Sendibíl ársins 2003". VW Transporter er smíðaður í verksmiðjum Volkswagen í Hannover í Þýskalandi og í Poznan í Póllandi.

Frétt frá Heklu.

Meðfylgjandi mynd er frá afhendingu fyrstu transporter pallbílanna
f.v Ingibergur Þorgeirsson frá Nesfisk Þórður Gunnarsson Heklu Kjartan Steinarsson Heklu Reykjanesbæ og Sigurður Friðriksson Guðdísi ehf.

Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024