Viðskipti

Skólamatur áfram í Garðabæ
Axel Jónsson veitingamaður og eigandi Skólamatar og Gunnar Einarsson, bæjarstjóri Garðabæjar.
Fimmtudagur 29. júní 2017 kl. 07:17

Skólamatur áfram í Garðabæ

Garðabær og Skólamatur ehf. hafa undirritað samning um framleiðslu og framreiðslu á skólamat fyrir grunnskóla Garðabæjar að undangengnu útboði. Þrjú tilboð bárust í útboðið. Þau voru frá ISS Ísland ehf., Sölufélagi Garðyrkjumanna og Skólamat ehf. Það er Viðskiptablaðið sem greinir frá þessu.
 
Útkoma útboðsins byggir á besta hlutfalli milli verðs (60%) og gæða (40%) og kom Skólamatur ehf. best út úr báðum flokkum að því er segir í fréttatilkynningu.
 
Samningurinn er til þriggja ára með möguleika á að framlengja þrisvar um eitt ár eða að hámarki til sex ára. Skólamatur hefur undanfarin 12 ár þjónustað skólamötuneyti grunnskóla Garðabæjar. Undirritunin fór fram á bæjarskrifstofu Garðabæjar í gær, miðvikudag.
Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024