„Skiptir mestu að hafa gott fólk með sér“
Húsasmiðjan í Reykjanesbæ fagnaði nýlega 10 ára starfsafmæli með pompi og prakt. Árni Júlíusson hefur verið rekstrarstjóri verslunarinnar frá upphafi en hann sagði í samtali við Víkurfréttir að áratugurinn sem liðinn er hafi verið ákaflega ánægjulegur, sérstaklega vegna þess góða anda sem ríkir meðal starfsfólks.
„Það hefur verið mikill uppgangur hjá okkur allt frá upphafi og það er alls ekki útlit fyrir breytingu á því. Það hafa orðið áherslubreytingar, en Húsasmiðjan er stofnuð fyrir réttum fimmtíu árum síðan sem byggingarvöruverslun. Við svörum hins vegar óskum viðskiptavinanna og erum nú mikið með árstíðabundna sérvöru. Á vorin erum við með grill og reiðhjól og svo erum við með vörur sem tengjast páskum sérstaklega og nú erum við á fullu í jólavörunum.”
Jólahátíðin hefur löngum verið annatími að sögn Árna, en nú eru ýmsar uppákomur í boði. Þau voru með konfektkvöld fyrir skemmstu þar sem konfektmeistari kom í búðina og sýndi snilli sína. Í kvöld verður svo 20% afsláttur af öllu í búðinni á milli kl. 19 og 21. Auk tilboðanna verður boðið upp á kakó, kaffi og piparkökur.
Þrátt fyrir að umræðan um fasteigna- og byggingamarkaðinn hafi ekki verið jákvæð undanfarið segir Árni að það sýni sig ekki í minnkandi verslun. „Það er ekki niðursveifla í gangi og ég er viss um að hún komi ekki á næsta ári. Það hefur kannski verið einhver deyfð í húsasölu, en hún mun taka við sér næsta ár. Allavegana er enn ungt fólk sem stendur í húsbyggingum að koma til mín í búðina að opna reikning.”
Árni segir að til standi að brydda upp á nýjungum á næstunni, en enn um sinn er ekki búið að taka neinan ákvörðun í þá átt.
Spurður að því hvort eitthvað hafi staðið uppúr á árunum tíu segir Árni að allur tíminn hafi verið ánægjulegur í heild sinni, enda vöxturinn stöðugur ár frá ári. „Það skiptir mestu máli að hafa gott fólk með sér því ef mórallinn er góður skilar það sér í betri þjónustu og ánægðum viðskiptavinum.”
Að lokum vill Árni þakka öllum viðskiptavinum samskiptin á síðustu árum með von um að framhald verði á.