Aðventugarðurinn
Aðventugarðurinn

Viðskipti

Miðvikudagur 22. desember 1999 kl. 20:14

SÍMALÍNUM OG PIZZAOFNUM FJÖLGAR Á LANGBEST

Barnaafmæli og amerískur morgunverður Ingólfur Karlsson keypti Langbest fyrir tæpum þremur árum, en staðurinn er 13 ára gamall og hefur þegar unnið sér fastan sess í bæjarlífinu. Miklar breytingar standa nú yfir en Ingólfur er að bæta við fleiri pizzaofnum, fá fleiri símalínur í húsið, býður uppá barnaafmæli með öllu og amerískan morgunverð (brunch) um helgar. Það var orðið tímabært að bæta þjónustuna og auka afköstin því eftirspurnin hefur aukist um helming á tæpum þremur árum. Nýr matseðill og amerískur morgunverður Ingólfur segir að Langbest flokkast sem skyndibitastaður og matseðillin er fjölbreyttur og ódýr. „Ég er nýbúinn að breyta matseðlinum og legg sérstaka áherslu á pizzurnar, en það langmesta salan er á þeim. Ég er líka nýfarinn að bjóða uppá amerískan morgunverð (brunch) en þá getur fólk komið milli kl. 11 og 14 á laugardögum og sunnudögum og fengið sér amerískar pönnukökur með sýrópi og smjöri, kartöflukökur, eggjaköku, beikon og kaffi og ávaxtasafa“, segir Ingólfur og bætir við að þessari nýbreytni hafi verið mjög vel tekið. Ingólfur segir matseðilinn vera í amerískum stíl en hann vann sem matreiðslumaður á Vellinum í 12 ár og sótti námskeið í hinum virta matreiðsluskóla, Culinary Institute of America í New York. Nýjir pizzuofnar í desember Ingólfur segir eftirspurnina á skyndibitum hafa aukist um helming frá því að hann tók við fyrir rúmum 2 árum, þrátt fyrir fjölgun sambærilegra staða. Viðskiptavinahópurinn er því stór og fjölbreyttur að sama skapi. Í hádeginu eru grillaðar steikur vinsælastar en þær eru á mjög góðu verði hjá Ingólfi. „Það er mest að gera í heimsendingunni og ég vil bjóða fólki uppá betri þjónustu í samræmi við það. Mér þykir slæmt þegar fólk þarf að bíða í klukkustund, stundum lengur eftir pizzu og vil ég nota tækifærið og þakka viðskiptavinum Langbest fyrir þolinmæðina. Ég hef fest kaup á nýjum og mjög öflugum pizzuofni sem verður kominn í gagnið um miðjan desember og mun hann anna helmingi meira en nú. Í honum er einnig hægt að baka brauðstangir og pönnupizzur sem ekki hafa fengist í Keflavík áður. Með þessu er ég að reyna að koma til móts við þarfir viðskiptavina minna“, segir Ingólfur en hann ætlar einnig að bæta við fleiri símalínum svo fólki nái strax inn. „Stefnan er að fólk getir hringt hvenær dags sem er og að það fái pizzurnar á innan við hálftíma. Fólk vill fá matinn strax, þess vegna heitir þetta skyndibiti“, segir Ingólfur. Barnaafmæli Langbest, Keilusport og Nýja bíó tóku sig saman og bjóða nú upp á barnaafmæli með öllu, þ.e. pizzur eins og hver getur í sig látið á Langbest, keilu og 3 eða 5-bíósýningu og popp og kók. Ingólfur segist hafa fengið margar fyrirspurnir og nú þegar væri búið að panta afmæli. „Þetta er tilvalið fyrir fólk sem er í litlu húsnæði og getur sökum plássleysis ekki verið með afmæli heima“, segir Ingólfur.
Jólalukka VF 2024
Jólalukka VF 2024