Viðskipti

Segja sjálftöku launa stjórnenda ögrun við launafólk
Fimmtudagur 22. mars 2018 kl. 18:16

Segja sjálftöku launa stjórnenda ögrun við launafólk

Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna hefur sent frá sér ályktun þar sem sjálftöku launa stjórnenda í fyrirtækjum er mótmælt harðlega. Formaður sambandsins [LÍV] er Guðbrandur Einarsson, formaður Verslunarmannafélags Suðurnesja.
 
Ögrun við launafólk
 
Stjórn Landssambands íslenzkra verzlunarmanna mótmælir harðlega þeirri sjálftöku launa sem á sér stað meðal stjórnenda í íslenskum fyrirtækjum. Allt frá því að kjararáð gaf tóninn með hækkun launa til þingmanna og forstöðumanna stofnana hefur orðið til hyldýpi milli þessara aðila og launafólks.  Þrátt fyrir að ákvörðunum kjararáðs hafi verið mótmælt harðlega og þrátt fyrir að ríkisstjórninni hafi gefist kostur á að leiðrétta þessa óhæfu,  þá reyndist hún ekki hafa þann kjark sem til þurfti þegar að á reyndi.  Á sama tíma er því haldið að launafólki að vera hófstillt í launakröfum til þess að viðhalda stöðugleika í samfélaginu. Það ríkir hins vegar ekki stöðugleiki hjá íslensku launafólki sem þarf á sama tíma að takast á við skerðingar barna- og vaxtabóta og raunlækkunar á persónuafslætti sem ekki fylgir almennri launaþróun og hefur ekki gert í áraraðir.   
 
Slík ögrun verður ekki liðin og mun valda upplausn á almennum vinnumarkaði verði ekkert að gert.  
 
Stjórn LÍV skorar stjórnvöld og stjórnir lífeyrissjóða að vinda ofan af þessari þróun aukinnar misskiptingar. 
 
Reykjavík, 21. mars 2018 
Stjórn LÍV 

Guðbrandur Einarsson, formaður LÍV og Verslunarmannafélags Suðurnesja 

Kristín M. Björnsdóttir, varaformaður LÍV og formaður deildar verslunarmanna VR á Austurlandi
Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR 

Eiður Stefánsson, formaður Félag verslunar- og skrifstofufólks Akureyri

Hjörtur Geirmundsson, formaður Verslunarmannafélags Skagafjarðar 

Gils Einarsson, formaður deildar verslunarmanna VR á Suðurlandi 

Svanhildur Þórsteinsdóttir 
Public deli
Public deli