Viðskipti

Samstarfssamningur Wapp og Reykjanes Geopark
Mánudagur 2. nóvember 2015 kl. 09:32

Samstarfssamningur Wapp og Reykjanes Geopark

Reykjanes Geopark og Wappið undirrituðu samstarfssamning á föstudaginn. Róbert Ragnarsson bæjarstjóri Grindavíkur og formaður stjórnar Reykjanes Geopark og Einar Skúlason framkvæmdastjóri Wappsins undirrituðu samninginn. Samningurinn er í nokkrum liðum en felur það í sér í fyrsta lagi að svæði Reykjanes verður nefnt Reykjanes Geopark í Wappinu, í öðru lagi mun Reykjanes Geopark bjóða upp á þrjár leiðarlýsingar sem verða ókeypis fyrir notendur Wappsins og í þriðja lagi verða í sameiningu sett niður markmið um fjölda og staðsetningu leiðarlýsinga á Reykjanesi sem verða skráðar í Wappið og seldar til notenda á vægu verði. Markmiðið er að setja upp töluvert margar leiðarlýsingar og fá höfunda leiðarlýsinga á svæðinu til liðs við verkefnið.

Um Wappið
Wappið (Walking app) er nýtt gönguleiðaapp fyrir snjallsíma sem verður gefið út á ensku og íslensku þann 5. nóvember. Leiðarlýsingarnar verða byggðar á gps punktum, með kortagrunni frá Samsýn og auk þess verða upplýsingapunktar á hverri leið sem veita upplýsingar í texta og oft með mynd um það sem ástæða þykir til að segja frá í náttúru og umhverfi, úr þjóðsögum eða af lífi fólks á svæðinu fyrr og nú. Stokkur ehf sér um forritun Wappsins og það verður tengt við tilkynningakerfi 112 appsins sem eykur öryggi ferðafólks.

Um Reykjanes Geopark
Stefna sveitarfélaganna og ferðaþjónustunnar á Reykjanesi er að leggja áherslu á jarðminjar svæðisins eins og flekaskilin, gígaraðir, háhitasvæði, jarðvarmann og Bláa Lónið. Áhersla er lögð á náttúruna og ferðamennsku sem veitir vellíðan. Hreyfing, slökun, hugleiðsla og spa eru aðalsmerki svæðisins. Stefnan er að auka vitund íbúa og gesta á sérstöðu Reykjanesskagans í jarðfræðilegu tilliti og koma sögu svæðisins á framfæri. Þetta er m.a. gert með aukinni fræðslu og styrkingu innviða ferðaþjónustunnar.
Reykjanes Geopark er sjálfseignarstofnun frá fimm sveitarfélögum og sex hagsmunaðilum sem eru aðilar að stofnuninni. Sveitarfélögin fimm eru Grindavíkurbær, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Sveitarfélagið Garður og Sveitarfélagið Vogar. Ásamt sveitarfélögunum eru Heklan - atvinnuþróunarfélag Suðurnesja, Ferðamálasamtök Reykjaness, Bláa Lónið, Þekkingarsetur Suðurnesja, Keilir - miðstöð vísinda fræða og atvinnulífs auk HS Orku aðilar að Reykjanes Geopark.

Bílakjarninn sumardekk 2024
Bílakjarninn sumardekk 2024