HSS
HSS

Viðskipti

Samningar á milli kröfuhafa og Spkef sparisjóðs - staða Spkef sparisjóðs styrkist
Mánudagur 8. nóvember 2010 kl. 16:11

Samningar á milli kröfuhafa og Spkef sparisjóðs - staða Spkef sparisjóðs styrkist

Föstudaginn 5. nóvember sl. náðist samkomulag milli slitastjórnar Sparisjóðsins í Keflavík og Spkef sparisjóðs, um uppgjör vegna yfirtöku Spkef sparsjóðs á innstæðum og rekstri Sparisjóðsins í Keflavík. Samkvæmt samkomulaginu greiðir Spkef sparisjóður samtals kr. 300 milljónir til Sparisjóðsins í Keflavík vegna yfirtöku á innstæðum, eignum og rekstri sparisjóðsins.

Með samkomulaginu skapast forsendur til þess að ljúka fjármögnun sparisjóðsins, en nýr efnahagsreikningur sparisjóðsins mun tryggja fjárhagslega stöðu hans í samræmi við kröfur Fjármálaeftirlits og Seðlabanka Íslands.

Sparisjóðurinn mun leggja áherslu á að starfa í anda sparisjóða hugsjónarinnar, bjóða viðskiptavinum sínum persónulega þjónustu af umhyggju og nærgætni með hagsmuni viðskiptavina að leiðarljósi. Sparisjóðurinn mun hér eftir, sem hingað til kappkosta að styðja vel við nærsamfélag sitt á hverjum stað fyrir sig.

Bílakjarninn
Bílakjarninn